Mosfellsdalur og Þingvellir eru hjáleið - En því er hægt að breyta Guðný Halldórsdóttir skrifar 23. nóvember 2016 07:00 Sorglegt er að sjá hvernig embættismenn hjá Vegagerðinni ætla sér að eyðileggja Mosfellsdalinn með breikkun vegarins, hringtorgum, undirgöngum, tengivegum og malbiki, til þess eins að fleiri farskjótar geti ekið greiðlegar austur á Þingvöll. Stór hluti umferðarinnar streymir í gegnum alla fegurðina og kemst á „hraðbrautina“ yfir Lyngdalsheiði, en nú standa yfir lagningar á „hraðbrautum“ yfir Kjósarskarð, milli Kjósar og Þingvalla og Uxahryggi, milli Borgarfjarðar og Þingvalla. Allri þessari umferð er stefnt í gegnum Mosfellsdalinn, án þess að tekið sé með í reikninginn að fjöldi ferðamanna hefur áttatíufaldast síðan embættismenn Vegagerðarinnar ákváðu að leggja þessa góðu vegi, en ýttu undir þetta rosalega gegnumstreymi í gegnum Þingvelli og Mosfellsdal. Dalbotninn er með frjósamari landsvæðum til allrar jarðræktar sem hugsast getur. Þar er langt niður á berg, sem er mikill mínus við vegagerð, peningalega séð. Þetta gegnumstreymi er orðið of mikið og stjórnlaust fyrir þennan veg, bæði Mosfellsdalinn og Þjóðgarðinn á Þingvöllum. Eðlilegast er að allir sem ætla og vilja njóta fegurðar og friðsældar þjóðgarðsins á Þingvöllum borgi aðgangseyri fyrir upplifunina og borgi fyrir þá þjónustu sem þar er hægt að veita. Þá myndi gegnumstreymið minnka til muna á Þingvallavegi og innan þjóðgarðsins.Nýjan veg ofan á þann gamla En það þarf annan veg yfir Mosfellsheiði. Þann sem var notaður áður en núverandi vegur var byggður í einum hlandspreng fyrir Alþingishátíðina 1930. Gamla veginn sem afi minn Guðjón byggði snemma á síðustu öld og er friðaður núna, vonandi með það í huga að í framtíðinni yrði hann endurbyggður. Hann liggur upp frá Geithálsi og austur í Þingvallasveit þó ekki í gegnum djúpa dalinn sem Magnús Grímsson, skáld orti um kvæðið: „Nú ríkir kyrrð í djúpum dal…“ Gamli vegurinn var byggður með tilliti til snjóalaga og er því snjóléttari, styttri og í alla staði fallegri en blessuð Mosfellsheiðin, sem er eitt helv… veðravíti. Í bók Jónasar í Stardal vegavinnustjóra „Menn og minjaþættir“ (Ís-land 2004) lýsir hann í smáatriðum tilurð nýja Þingvallavegarins og er að afsaka það vegstæði og gera gys að því, en hann fylgdi þeirri veglagningu frá upphafi til enda. Vegurinn var byggður á tveimur sumrum, í akkorði og allt kapp lagt á að ljúka verkinu sem fyrst eftir að Jónas frá Hriflu vildi halda Alþingishátíð í tilefni þess að 1000 ár voru liðin frá því að Íslendingar stofnuðu allsherjarþing á Þingvöllum. Takk fyrir – fyrsta alvarlega Þingvallahátíðarvegagerðaræðið, en nokkur hafa þau verið síðan og núna lítur út fyrir að þarna sé hátíð á hverjum einasta degi alla daga, a.m.k. eftir umferðinni að dæma.Freki kallinn á ferð Ákvörðun um nýtt vegstæði til Þingvalla, var tekin í bræðiskasti af einhverjum skapofsamanni sem var fógeti í Reykjavík og formaður nefndar um endurbyggingu Þingvallavegar. Freki kallinn þverneitaði að lagfæra og breikka gamla veginn og ærðist af því að hann fékk ekki að byggja nýjan í sínu nafni og hótaði að segja af sér nefndarstjórn ef hann fengi ekki að ráða. Jónas og vegamálastjóri urðu hræddir, fóru því og fundu nýtt vegstæði, byggt með það í huga að sem styst væri í möl. Eru því beygjur og sveigjur á veginum og hann lagður í alkunn veðravíti, en aðalatriðið var að menn með skóflu og hestakerru væru sem fljótastir að ná í vagnhlass. Til að mynda þótti góður ofaníburður á Bugðueyrum og við Vilborgarkeldu og vegurinn tekur mið af því. Ef gamli vegurinn yrði endurunninn yrði það aðeins um 18 kílómetra veglagning á þegar reyndu vegstæði. Þar er engin byggð og hægt að gera greiðfærari leið, eyðileggja ekki neitt fyrir neinum, nema kannski nokkrum lóum. Það hlýtur að vera hagkvæmara en að hrúga upp öllum þeim umferðarmannvirkjum hér í dalnum sem stefnt er að, með tilheyrandi eyðileggingu á gróðursælu og byggilegu svæði. Nú er í Mosfellsdal rekin ein eða fleiri atvinnustarfsemi á öllum afleggjurum og hefur alla burði í að eflast, ef ekki verður hellt malbiki og steypu og hringtorgum yfir allan þennan gjöfula og lífræna jarðvegsgrunn. Svo er spurning hver ákvað það að Þingvellir gætu tekið við allri þessari umferð, og hvort Þingvellir þoli allan þennan fjölda. Þeir sem stjórna Vegagerðinni, hljóta að verða að finna lausn á því hvort það sé verjandi að nota þjóðgarðinn á Þingvöllum sem hjáleið fyrir fólk sem á ekkert erindi í Þingvallasveitina, heldur er að fara norður, austur eða jafnvel vestur á firði og hefur engan húmor fyrir friðsældinni og fegurðinni, heldur er að drífa sig að sinna sínu í fjarlægari sveitum.Samantekt Best væri að hlífa Þingvöllum sem hjáleið og banna bílaumferð þar, nema rafmagnsvagna, sem reknir væru af Þjóðgarðinum. Gamli friðaði vegurinn sem byggður var með tilliti til veðurfars og snjóalaga og liggur upp frá Suðurlandsvegi yrði endurbyggður. Vegurinn um Mosfellsdal sem er sprunginn, getur ágætlega nýst þeirri starfsemi sem þegar er hér í dalnum og fer stöðugt vaxandi. Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar