Mýrdalshreppur: Ákvörðun um hótel kínversks fjárfestis frestað Atli Ísleifsson skrifar 25. nóvember 2016 10:42 Vík í Mýrdal. Vísir/heiða helgadóttir
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps ákvað á fundi sínum í gær að fresta afgreiðslu á umsókn kínverska fjárfestisins Xinglin Xu um lóðir undir hótel í austurhluta Víkur. Í fundargerð segir að fjárfestirinn vilji byggja áttatíu til hundrað herbergja þriggja stjörnu hótel með veitingasal. „Í umsókninni er gert ráð fyrir því að fyrstu allt að tvö árin verði 20 herbergi hótelsins nýtt fyrir starfsfólk, eða þar til búið verður að sækja um lóð til að byggja varanlega aðstöðu fyrir starfsfólk.“ Sveitarstjórn hefur átt fund með Xinglin Xu þar sem farið var yfir áform um uppbygginguna. Þar sem fleiri en ein umsókn hefur borist sveitarstjórn um umræddar lóðir var ákveðið fresta afgreiðslu umsóknarinnar og óska eftir skýrari og ítarlegri greinargerð frá umsækjanda um fyrirhugaða framkvæmd, framkvæmdatíma, rekstrarfyrirkomulag, fjármögnun verkefnisins, mönnun og húsnæðismál væntanlegra starfsmanna. Í fundargerð kemur fram að Eva Dögg Þorsteinsdóttir, fulltrúi M-listinn, telji mikilvægt að sveitarstjórn hraði vinnu við stefnumörkun svæðisins bæði út frá hagfræðilegu og félagsfræðilegu sjónarhorni. Þannig geti sveitarstjórn tekið upplýsta ákvörðun. Xinglin Xu hefur verið búsettur á Íslandi um nokkurt skeið og rekur hér ferðaþjónustufyrirtæki.
Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira