Tónlistarkennarar – Engir annars flokks kennarar Gunnar Guðbjörnsson skrifar 11. nóvember 2016 07:00 Verðleikamat á menntun virðist vefjast fyrir stjórnvöldum. Af stefnuskrám stjórnmálaflokka í kosningabaráttunni nú í haust mátti þó draga þá ályktun að menntun væri sumum flokkum verulega mikilvæg. Ef sú væri raunin ætti það að endurspeglast í stefnu þessara sömu flokka í sveitarstjórnum. Svo er hins vegar ekki. Tveimur kjarasamningum grunnskólakennara hefur verið hafnað og er enn óvíst hvenær samningar nást sem þeir sætta sig við. En það sitja ekki allir við sama borð því að sumum kennurum er ekki einu sinni gert óásættanlegt tilboð: Tónlistarkennurum. Fyrir hrun nutu grunnskólakennarar og tónlistarkennarar sömu launa fyrir sömu vinnu. Eftir að landið lagðist á hliðina árið 2008 tóku þeir síðarnefndu hins vegar á sig stórfellda launaskerðingu. Enn hefur sú skerðing ekki verið leiðrétt. Samband íslenskra sveitarfélaga virðist aðeins reiðubúið að bjóða tónlistarkennurum í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum samning sem er í takt við launakjör samkvæmt launasamningi sambandsins við Félag íslenskra hljómlistarmanna frá því í fyrra. Sá samningur felur í sér 15% lægri laun en samningurinn sem grunnskólakennarar hafa tvisvar hafnað. Þannig hyggst SÍS viðhalda launamisréttinu sem myndaðist í hruninu og skapa viðvarandi stéttaskiptingu meðal kennara. Svo litla virðingu bera sveitarstjórnir fyrir okkar störfum. Enginn þarf að efast um mikilvægi menningar í okkar litla landi. Maðurinn lifir ekki á brauði einu saman og er menning okkur nauðsynleg til að lifa af hér á norðurhjara. Að auki hefur hún reynst magnað segulstál á þær milljónir ferðamanna sem heimsótt hafa Ísland síðustu ár en enginn efast um hlut þeirra í að rétta af efnahag landsins eftir hrun. Hún hefur einnig átt drjúgan þátt í að reisa við orðspor okkar Íslendinga á erlendri grund. Listkennsla er lykillinn að því að menning okkar blómstri og þar gegnir tónlistarkennslan risavöxnu hlutverki. Íslensk tónlist hefur fangað athygli heimsbyggðarinnar ekki síður en bókmenntirnar. Menning er eins konar markaðssetning á landinu og sjái stjórnvöld ekki nauðsyn þess að við þá markaðssetningu sé stutt er augljóst að landið mun fyrr en síðar komast í þrot. Það er alvarlegur skortur á hyggjuviti. Í aðdraganda fimm vikna verkfalls tónlistarkennara haustið 2014 og eftir að því lauk sat ég marga fundi með þeim stjórnmálaflokkum sem þá sátu á Alþingi. Þeir þingmenn sem ég ræddi við voru allir á einu máli um ágæti tónlistarmenntunar. Meirihluti þeirra var á þeirri skoðun að farsælast væri að ríkið tæki að sér að fjármagna kennslukostnað tónlistarskólanna. Þeir sem skáru sig úr þessum hópi voru sjálfur mennta- og menningarmálaráðherra og því miður þingmenn Sjálfstæðisflokks. Það var því varnarsigur skólanna að raunfjármagn til Jöfnunarsjóðs fengist sem leiddi af sér nokkra hækkun á greiðslum til tónlistarskóla. Fyrir skólana í Reykjavík sem glímt hafa við ófullnægjandi fjármögnun frá borginni var þetta og sameiginleg fjárveiting ríkis og sveitarfélaga til tónlistarskóla lífsbjörg og fyrir hana erum við þakklát.Ekki ástæða til að kyssa vöndinn Ekki teljum við tónlistarkennarar þó ástæðu til að kyssa vöndinn. Við teljum okkur sinna störfum okkar af sömu kostgæfni og gæðum og grunnskólakennarar og vitum að starf okkar skiptir máli. Við sættum okkur ekki við að vera álitnir þurfalingar eða sníkjudýr á íslensku samfélagi, hvað þá „annars flokks borgarar“ sem hægt er að bjóða lægri laun en öðrum. Tuttugu þúsund Íslendingar starfa við skapandi greinar og eru tónlistin og tónlistarnámið verulegur hluti af því mengi. Tónlistarnemar hafa náð frábærum árangri í framhaldsnámi í hvort heldur er öðrum listgreinum eða ólíkum greinum háskólanáms svo eftir því hefur verið tekið. Margsannað og viðurkennt er að tónlistarnám eykur námsgetu barna og ungmenna í öðrum námsgreinum. Því væri skynsamlegast í okkar litla samfélagi að kappkosta að bæta árangur íslenskra barna með því að bjóða öllum aðgang að tónlistarnámi fremur en að grafa undan tónlistarkennslu með því að fæla kennara frá greininni. Við viljum að kennslustörf okkar verði fullfjármögnuð og að við verðum metnir til jafns við aðra í launum. Afstaða fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga til tónlistarnáms er þeim til minnkunar. Lausnin gæti verið að losa þessa mikilvægu grein undan þeirri áþján sem fylgir því að glíma við þröngsýna kothugsun og færa alla fjármögnun tónlistarnáms á Íslandi undir ríkissjóð. Þá verða líka þingmenn og ráðherrar að standa undir því trausti.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson Skoðun Ekkert ævintýri fyrir mongólsku hestana María Lilja Tryggvadóttir Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir Skoðun „Þótt náttúran sé lamin með lurk!“ Sigurjón Þórðarson Skoðun Nám í skugga óöryggis Sigurður Árni Reynisson Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Tæknin á ekki að nota okkur Anna Laufey Stefánsdóttir Skoðun Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Réttmætar áhyggjur eða ósanngjarnar alhæfingar? Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun „Þótt náttúran sé lamin með lurk!“ Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ekkert ævintýri fyrir mongólsku hestana María Lilja Tryggvadóttir skrifar Skoðun Nám í skugga óöryggis Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Tæknin á ekki að nota okkur Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ytra mat í skólum og hvað svo? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslaust Ísland! - Með hjálp stefnu um skaðaminnkun Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Meðsek um þjóðarmorð vegna aðgerðaleysis? Pétur Heimisson skrifar Skoðun Tími ábyrgðar í útlendingamálum – ekki uppgjafar Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun Takk starfsfólk og forysta ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Þjóðarmorðið í Palestínu Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Eldra fólk, þolendum ofbeldis oft ekki trúað Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Tölfræði og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Umgengnistálmanir – brot á réttindum barna Einar Hugi Bjarnason skrifar Skoðun Frá dulúð til daglegs lífs: Hvernig nýjasta gervigreindin vinnur með þér – og gerir þig klárari Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar Skoðun Baráttan um þjóðarsálina Alexandra Briem skrifar Skoðun Lagaleg réttindi skipta máli Kári Garðarsson skrifar Skoðun Pride and Progress: Advancing Equality Through Unity Clara Ganslandt skrifar Skoðun Hver rödd skiptir máli! Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Sýnum þeim frelsið Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar
Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun Frá dulúð til daglegs lífs: Hvernig nýjasta gervigreindin vinnur með þér – og gerir þig klárari Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar
Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar
Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir Skoðun