Hvatningarútfararstjórinn hún Xina! Rúna Magnúsdóttir skrifar 26. október 2016 09:00 Hún Xina Gooding, sem rekur útfararstofu í Bretlandi, leitaði til mín fyrir skömmu og tjáði mér að hún vissi ekki lengur hvernig hún ætti að finna sérstöðu sína á markaði. Hún væri jú, útfararstjóri og hvernig í ósköpunum gæti hún verið öðruvísi en aðrar útfararstofur? „Ég meina, allir á þessum markaði segjast bjóða upp á góða og persónulega þjónustu,“ og bætti svo við: „Hvað sem það nú þýðir.“ Svo hélt hún áfram og sagði: „Það sem er að rugla mig er hitt áhugamálið mitt í lífinu!“ „Nú?“ hváði ég. „Jú, ég á mér annað áhugamál, sem er alltaf að taka stærri og stærri sess í lífi mínu.“ Svo hélt hún áfram: „Hitt áhugamálið mitt er að vera hvatningarfyrirlesari. Ég fæ beiðnir um að vera með fyrirlestra um allt England og fólk er yfir sig hrifið af því sem ég hef fram að færa. Ég finn að ég næ til fólks, fæ það til að hugsa um líf sitt á annan hátt og sjá tækifærin sem blasa við því. Fólk kemur til mín með tárin í augunum eftir hvern einasta fyrirlestur og vill fá að læra meira.“ „En spennandi,“ svaraði ég, „en segðu mér, hvert er vandamálið?“ „Jú,“ svaraði hún, „þegar ég er með fyrirlestrana mína, þá get ég ekki verið að tengja mig við útfararstofuna. Það gengur ekki upp!“ „Nú?“ svaraði ég og bætti við: „Ef það gengi upp, Xina, hvað myndir þú þá vera?“ Það varð dásamleg þögn í smástund og svo horfði ég á andlit Xinu umbreytast og hún sagði: „Jemundur minn … ef ég leyfi mér að sameina það sem ég er; það sem gefur mér gleði, tilgang og ég næ árangri með, þá er ég auðvitað „Hvatningarútfararstjórinn“.“ Síðustu fréttir: Útfararþjónusta Xinu í Bretlandi sker sig úr öllum öðrum útfararþjónustum. Það er engin önnur útfararstofa í Bretlandi sem leiðbeinir deyjandi fólki og ættingjum þess að lifa lífinu lifandi áður en það deyr! Hver er sérstaða þín á markaði? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Hún Xina Gooding, sem rekur útfararstofu í Bretlandi, leitaði til mín fyrir skömmu og tjáði mér að hún vissi ekki lengur hvernig hún ætti að finna sérstöðu sína á markaði. Hún væri jú, útfararstjóri og hvernig í ósköpunum gæti hún verið öðruvísi en aðrar útfararstofur? „Ég meina, allir á þessum markaði segjast bjóða upp á góða og persónulega þjónustu,“ og bætti svo við: „Hvað sem það nú þýðir.“ Svo hélt hún áfram og sagði: „Það sem er að rugla mig er hitt áhugamálið mitt í lífinu!“ „Nú?“ hváði ég. „Jú, ég á mér annað áhugamál, sem er alltaf að taka stærri og stærri sess í lífi mínu.“ Svo hélt hún áfram: „Hitt áhugamálið mitt er að vera hvatningarfyrirlesari. Ég fæ beiðnir um að vera með fyrirlestra um allt England og fólk er yfir sig hrifið af því sem ég hef fram að færa. Ég finn að ég næ til fólks, fæ það til að hugsa um líf sitt á annan hátt og sjá tækifærin sem blasa við því. Fólk kemur til mín með tárin í augunum eftir hvern einasta fyrirlestur og vill fá að læra meira.“ „En spennandi,“ svaraði ég, „en segðu mér, hvert er vandamálið?“ „Jú,“ svaraði hún, „þegar ég er með fyrirlestrana mína, þá get ég ekki verið að tengja mig við útfararstofuna. Það gengur ekki upp!“ „Nú?“ svaraði ég og bætti við: „Ef það gengi upp, Xina, hvað myndir þú þá vera?“ Það varð dásamleg þögn í smástund og svo horfði ég á andlit Xinu umbreytast og hún sagði: „Jemundur minn … ef ég leyfi mér að sameina það sem ég er; það sem gefur mér gleði, tilgang og ég næ árangri með, þá er ég auðvitað „Hvatningarútfararstjórinn“.“ Síðustu fréttir: Útfararþjónusta Xinu í Bretlandi sker sig úr öllum öðrum útfararþjónustum. Það er engin önnur útfararstofa í Bretlandi sem leiðbeinir deyjandi fólki og ættingjum þess að lifa lífinu lifandi áður en það deyr! Hver er sérstaða þín á markaði?
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar