Innlent

„Þetta mál er farið að minna mig mjög mikið á hið svokallaða lekamál“

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Helgi Hrafn Gunnarsson.
Helgi Hrafn Gunnarsson. Vísir/Anton
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, var harðorður undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Helgi Hrafn gerði fullyrðingu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, um að brotist hafi verið inn í tölvu hans, að umræðuefni sínu. 

Hann sagði það til skammar hvernig stjórnmálamenn leyfi sér að hagræða sannleikanum til að koma höggi á aðra eða lyfta sjálfum sér upp. Þá sagði hann vera kominn tími á að stjórnmálamenn leggðu vinnu í að vera heiðarlegir.

Fullyrðing Sigmundar hefur vakið mikla athygli. Komið hefur fram að að eftir ítarlega leit fundust engin ummerki um að innbrot í tölvuna hafi átt sér stað, að því er kemur í svari Rekstrarfélags stjórnarráðsins við fyrirspurn Kjarnans.

Minnir á lekamálið

„Nú get ég ekki að því gert að þetta mál er farið að minna mig mjög mikið á hið svokallaða lekamál. Maður á sem sagt að venjast því að taka öllu með mjög miklum fyrirvara. Maður á að venjast því að salta allt sem stjórnmálamenn segja vegna þess að þeim er ekki treystandi til að segja nokkurn tímann eitthvað sem hægt er að staðfesta með raunverulegum gögnum,“ sagði Helgi Hrafn.  

„Þegar hlutirnir eru athugaðir kemur í ljós að það var í skásta falli mjög, mjög villandi sem var sagt. Þessu eigum við að venjast, þessu á almenningur bara að venjast. Þetta á bara að vera hluti af pólitíkinni. Svona haga stjórnmálamenn sér.“

Hegðun stjórnmálamanna til skammar

„Það er til skammar hvernig stjórnmálamenn leyfa sér að hagræða sannleikanum til þess eins að koma höggi á aðra eða lyfta sjálfum sér upp. Það er til skammar fyrir okkur sem fólk, sem manneskjur, ekki bara sem stjórnmálamenn, ekki bara fyrir þessa iðngrein eða hvað við eigum að kalla það. Fólk á ekki að haga sér svona hvort sem það er í stjórnmálum eða ekki. Mér finnst alveg kominn tími til þess að við förum að ræða það sem samviskuspurningu, ekki bara pólitíska spurningu.“

Helgi Hrafn sagði jafnframt að slík hegðun drægi úr virðingu fyrir Alþingi og stjórnmálamönnum. 

„Það getur kostað smávinnu að vera heiðarlegur því að stundum þarf maður að leggja vinnu í að kynna sér gögn og hugsa málin til enda. Þegar fólk leyfir sér að sleppa því bara til þess að fá betri höggstað á andstæðingi sínum er það ekki í lagi. Það er óheiðarlegt, virðulegi forseti. Það er þessi hefð, þessi hegðun, sem dregur úr virðingu hins háa Alþingis, ríkisstjórnar og stjórnmálamanna almennt. Mér finnst kominn tími til að við hugsum öll um þetta. Öll sem eitt.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×