Hugarafl stofnar stuðningshóp fyrir tölvufíkla Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. september 2016 15:34 „Tölvufíknin splundrar heimilinu eins og önnur fíkn og þetta er bara skelfilegt vandamál,“ segir verkefnisstjóri hjá Hugarafli. vísir/getty
Samtökin Hugarafl standa fyrir málþingi í kvöld um tölvufíkn en Þorsteinn Kristjáns Jóhannsson sem glímdi við tölvufíkn mun flytja fyrirlestur og segja frá sinni reynslu. Hann hefur haldið fjölda fyrirlestra um tölvufíkn og heldur úti heimasíðu um fíknina, en Eiríkur Guðmundsson verkefnisstjóri hjá Hugarafli segir í samtali við Vísi að tölvufíkn sé skelfilegt vandamál. „Tölvufíknin splundrar heimilinu eins og önnur fíkn og þetta er bara skelfilegt vandamál. Þorsteinn hélt fyrirlestur hjá okkur í vor og hann snerti mikið við fólki. Við ákváðum því að halda málþingið og fá Þorstein aftur til okkar, og svo kviknaði sú hugmynd í framhaldinu að stofna stuðningshóp fyrir tölvufíkla sem myndi hittast vikulega hérna hjá Hugarafli,“ segir Eiríkur. Hann segir samtökin renna dálítið blint í sjóinn með hversu margir muni mögulega sækja í stuðningshóp fyrir tölvufíkla. Ekki sé hægt að setja nákvæma tölu á það hversu margir glími við tölvufíkn. „Það er oft erfitt að viðurkenna og það getur jafnvel verið erfitt að fá fólk út úr húsi. Það er því miður þannig að það eru til fá úrræði við þessari fíkn en við vonumst til að öðlast þekkingu með stuðningshópnum til að þróa einhvers konar meðferðarúrræði hér á landi,“ segir Eiríkur. Málþing Hugarafls um tölvufíkn hefst klukkan 18 í kvöld og stendur til klukkan 20. Það fer fram í Borgartúni 22 á 3. hæð og er opið öllum.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fleiri fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Sjá meira