Salek-hópurinn fékk hlaðborð af hugmyndum Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. september 2016 07:00 Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari. mynd/aðsend
Steinar Holden, prófessor við Oslóarháskóla, hefur skilað Salek-hópnum bráðabirgðaútgáfu af skýrslu um það hvernig bæta megi vinnubrögð við kjarasamningagerðina á Íslandi. Markmiðið er að tryggja sjálfbæra launaþróun á Íslandi, þannig að launahækkanir skili raunverulegri kaupmáttaraukningu en ekki bara hækkun nafnlauna. „Að mati Holdens þarf launaþróunin að vera sjálfbær og samkeppnishæfni atvinnulífsins að ráða því hversu mikið svigrúm er til launahækkana,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari, sem leiðir starf Salek-hópsins. Bryndís segir að tillögur Holdens séu nokkurs konar hlaðborð hugmynda um það hvernig megi bæta kjarasamningagerðina hér á landi. Íslendingar þurfi svo að finna það líkan sem henti Íslendingum best. „Hann byggir sínar hugmyndir á þeim líkönum sem eru við lýði í Noregi og horfir líka aðeins til Danmerkur og Svíþjóðar,“ segir Bryndís. Norrænu módelin byggja á því að aðilar á vinnumarkaði hafa komið sér saman um það hverjir skuli semja fyrst (vera undanfari) og aðrir sem fylgja í kjölfarið skuldbindi sig til þess að fylgja því merki sem þar er gefið. Bryndís segir að í skýrslunni séu meðal annars reifaðar hugmyndir um undanfarasamninga. Á Norðurlöndunum sé það framleiðslugeirinn sem geri undanfarasamningana. Holden útskýrir í skýrslunni hvað góður undanfari þarf að hafa til að bera. „Á Íslandi er vandamálið að það er erfitt að finna einn augljósan undanfara því okkar útflutningsgreinar byggja á auðlindum og eru háðar sveiflum í auðlindinni,“ segir Bryndís. Valið á undanfara sé flókið en Holden bendi á nokkrar leiðir til að bregðast við því. Þá bendi Holden á að það verði að vera til staðar trygging um að fordæminu sé fylgt annars staðar á vinnumarkaðnum þannig að þeir sem semji fyrstir endi ekki á að vera með minnstar launahækkanir. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fleiri fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Sjá meira