Ekki nóg að setja bara peninga í að stytta biðlista Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 31. ágúst 2016 20:15
Formaður starfshóps sem vinnur nú að því að endurskoða stöðu barna með ADHD hér á landi segir ekki lausnina að setja peninga í að stytta biðlista. Aðgerðir þurfi til að koma í veg fyrir að þeir myndist með því að skoða heildarsamhengið. Stöð 2 hefur undanfarið fjallað um stöðu barna með ADHD á Íslandi, en tölur um nákvæman fjölda barna með greininguna liggja ekki fyrir. Það er þó staðreynd að þessi börn eru er líklegri en aðrir til að fara út af sporinu, leiðast út í fíkniefnaneyslu og áhættuhegðun, en talið er að sextíu prósent fanga í íslenskum fangelsum séu með ADHD. Hafrún Kristjánsdóttir leiðir starfshóp sem undanfarið hefur rannsakað stöðu barna með ADHD eða fjölþættan vanda. Hún segir ljóst að hægt sé að gera betur í málaflokknum. „Það var ákveðið að skoða þetta umhverfi, þjónustuferla, þjónustu og stuðning við börn með ADHD og sú vinna er hreinlega bara í gangi núna. Okkar hlutverk er að skoða hvernig við getum hjálpað þessum börnum sem eiga í vanda fyrr,“ segir Hafrún. Barnaréttarnefnd Sameinuðu Þjóðanna gerði úttekt á heilbrigðismálum barna fyrir fimm árum þar sem lýst var yfir áhyggjum á vaxandi fjölda barna hér á landi sem greinast með ofvirkni og athyglisbrest eða svipaðar raskanir. Einnig hafði nefndin áhyggjur af löngum biðlistum eftir greiningu og meðferð. Í skýrslu ríkisendurskoðunar frá því í febrúar kemur fram að sá langi biðtími sem sem hefur einkennt geðheilbrigðis-þjónustu við börn og unglinga sé óviðunandi, og stefni langtímahagsmunum og velferð þeirra í tvísýnu. „Auðvitað viljum við ekki hafa biðlista en það er ekkert alltaf lausnin að setja hundrað eða tvö hundruð milljónir í að draga niður biðlista í einhvern smá tíma. Það þarf náttúrulega bara að gera þetta þannig að þetta vandamál komi ekki alltaf aftur og aftur upp. Að þessir löngu biðlistar myndist. Og það er okkar hlutverk að skoða hvernig hlutirnir eru í heildarsamhengi og koma með tillögur að úrbótum. Það munum við gera og svo sjáum við hvað setur,“ segir Hafrún.
Tengdar fréttir „Vona að sagan hennar verði til þess að forða einhverjum frá því að prófa fíkniefni og enda á þennan hræðilega hátt“ Móðir 17 ára stúlku sem lést í júní í fyrra eftir að hafa tekið inn eina og hálfa E-töflu vonar að saga dóttur sinnar nýtist til að bjarga börnum og ungmennum í svipaðri stöðu, það er þeim sem eru með fjölþættan vanda og lenda utanveltu í kerfinu. Taka þurfi betur utan um þau og viðurkenna þau á þeirra eigin forsendum. 22. ágúst 2016 20:35 Kvöldfréttir Stöðvar 2: Hafði þá tilfinningu að hún myndi ekki lifa af að prófa e-töflu Ingibjörg Melkorka Ásgeirsdóttir var fædd 8. mars 1998 og var því nýorðin sautján ára þegar hún lést í júní í fyrra eftir að hafa tekið inn eina og hálfa E-töflu. 22. ágúst 2016 15:30 Ekki vitað um fjölda barna með ADHD hér á landi Ekki eru til tölur um fjölda barna sem greind eru með ADHD hér á landi þrátt fyrir fyrirmæli Landlæknis um að skráning á greingingunni sé skýr. Formaður ADHD samtakanna segir brýnt að samræmd skráning verði skýr í lögum svo hægt sé að taka til hendinni í málaflokknum. 25. ágúst 2016 19:15 Mörg börn með ADHD í sambærilegum vanda og Ingibjörg Melkorka Sérfræðingur í málefnum barna með ADHD segir að fjöldi barna með greininguna lendi í áhættuhópi gagnvart áhættuhegðun og fíkniefnaneyslu. Aukið fjármagn þarf í málaflokkinn þar sem eru viðvarandi biðlistar, en það getur tekið allt að þrrjú ár að fá ADHD greiningu hjá Þroska-og hegðunarstöð Heilsugsæslunnar. 24. ágúst 2016 19:30 Sextíu prósent fanga á Íslandi með ADHD "Þetta er mesta sóun sem hægt er að hugsa sér", segir framkvæmdastjóri ADHD samtakanna, en yfir sextíu prósent fanga í íslenskum fangelsum eru haldnir ADHD, eða ofvirkni með athyglisbresti. Úrræði vantar fyrir fanga með greininguna hér á landi. 29. ágúst 2016 18:00 Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Sjá meira
„Vona að sagan hennar verði til þess að forða einhverjum frá því að prófa fíkniefni og enda á þennan hræðilega hátt“ Móðir 17 ára stúlku sem lést í júní í fyrra eftir að hafa tekið inn eina og hálfa E-töflu vonar að saga dóttur sinnar nýtist til að bjarga börnum og ungmennum í svipaðri stöðu, það er þeim sem eru með fjölþættan vanda og lenda utanveltu í kerfinu. Taka þurfi betur utan um þau og viðurkenna þau á þeirra eigin forsendum. 22. ágúst 2016 20:35
Kvöldfréttir Stöðvar 2: Hafði þá tilfinningu að hún myndi ekki lifa af að prófa e-töflu Ingibjörg Melkorka Ásgeirsdóttir var fædd 8. mars 1998 og var því nýorðin sautján ára þegar hún lést í júní í fyrra eftir að hafa tekið inn eina og hálfa E-töflu. 22. ágúst 2016 15:30
Ekki vitað um fjölda barna með ADHD hér á landi Ekki eru til tölur um fjölda barna sem greind eru með ADHD hér á landi þrátt fyrir fyrirmæli Landlæknis um að skráning á greingingunni sé skýr. Formaður ADHD samtakanna segir brýnt að samræmd skráning verði skýr í lögum svo hægt sé að taka til hendinni í málaflokknum. 25. ágúst 2016 19:15
Mörg börn með ADHD í sambærilegum vanda og Ingibjörg Melkorka Sérfræðingur í málefnum barna með ADHD segir að fjöldi barna með greininguna lendi í áhættuhópi gagnvart áhættuhegðun og fíkniefnaneyslu. Aukið fjármagn þarf í málaflokkinn þar sem eru viðvarandi biðlistar, en það getur tekið allt að þrrjú ár að fá ADHD greiningu hjá Þroska-og hegðunarstöð Heilsugsæslunnar. 24. ágúst 2016 19:30
Sextíu prósent fanga á Íslandi með ADHD "Þetta er mesta sóun sem hægt er að hugsa sér", segir framkvæmdastjóri ADHD samtakanna, en yfir sextíu prósent fanga í íslenskum fangelsum eru haldnir ADHD, eða ofvirkni með athyglisbresti. Úrræði vantar fyrir fanga með greininguna hér á landi. 29. ágúst 2016 18:00