Hættur við samstarf við Hollendinginn en hefur enn trú á einkasjúkrahúsi á Íslandi Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 12. ágúst 2016 15:29 Gunnar Ármannsson, annar íslensku fjárfestanna, hefur enn tröllatrú á að einkasjúkrahús eigi erindi við íslensku þjóðina. Vísir/Samsett
Íslenskir fjárfestar hafa dregið sig úr áformum um að stofna einkarekið sjúkrahús í Mosfellsbæ. Gunnar Ármannsson, annar fjárfestanna, segist þó ekki efast um að einkasjúkrahús geti risið á Íslandi, og telur það jafnvel geta hjálpað íslensku heilbrigðiskerfi. Áform MCPB ehf. um að reisa einkasjúkrahús í Mosfellsbæ hafa vakið mikið umtal og ekki hafa allir verið á sama máli um það. RÚV greindi frá því í hádegisfréttum að Gunnar Ármannsson og Unnar Steinn Hjaltason hafi dregið sig úr samstarfinu við Henri Middeldorp. Í samtali við Vísi segir Gunnar að ástæður þess að þeir ákváðu að draga sig til hlés séu einfaldar. „Þegar þessi umræða fór af stað þá varð hún fljótt neikvæð út í fjárfestana sem væru á bak við verkefnið. Þá þótti okkur eðlilegt að upplýsa bara strax um hverjir þetta væru. Það stóð hvort sem er til að það yrði gert þegar sótt yrði um ívilnanir fyrir verkefninu. Okkur fannst ástæðulaust að vera að búa til einhverja óþarfa tortryggni sem ekki þyrfti að vera. Þannig að við vildum að það yrði upplýst hverjir væru á bak við þetta.“ Gunnar segir að ekki hafi verið samkomulag um það. „Henri vildi bíða með þetta þar til það yrði sótt um þessar ívilnanir og okkur fannst það bara ekki rétt nálgun á verkefninu þannig að okkur fannst þá einfaldast að við myndum draga okkur til hlés og það gerðum við.“Ekki einungis einkasjúkrahús sem geti ógnað heilbrigðiskerfinu Gunnar segir að hann og Unnar hafi ekki verið ekki búnir að skuldbinda sig verkefninu, þeir hafi hvo átt 1% í MCRB ehf. og hafi afsalað sér því. „Við sjáum það bara á umræðunni að þetta er eldfimt mál og við töluðum um það frá upphafi að þetta yrði ekki unnið öðruvísi en í sátt og samlyndi við íslensk stjórnvöld,“ segir Gunnar. „Ég er þeirrar skoðunar að það geri það ekki heldur þvert á móti held ég að þetta geti verið eitt af því sem geti mögulega hjálpað íslensku heilbrigðiskerfi, og ég er búinn að vera þeirrar skoðunar mjög lengi,“ segir Gunnar. „Það er talað um að svona verkefni muni taka íslenskt starfsfólk frá íslenska heilbrigðiskerfinu. Þá má spyrja á móti, hvað með aðrar greinar sem hafa verið að soga til sín starfsfólk úr íslenska heilbrigðiskerfinu, eins og til dæmis flugreksturinn? Er það þá ekki ógn við íslenska heilbrigðiskerfið? Það væri forvitnilegt að vita hversu margir hjúkrunarfræðingar til dæmis eru að vinna núna sem flugfreyjur. Það er fjöldinn allur af heilbrigðisstarfsmönnum sem hefur farið í önnur störf af því að þau eru betur launuð.“Ósammála Kára Stefánssyni um heilbrigðistúrisma Þrátt fyrir að hafa dregið sig í hlé úr samstarfi við Middeldorp segist Gunnar ekki vera í vafa um að staður fyrir einkarekstur í íslensku heilbrigðiskerfi, og að Maltverjar séu áhugavert dæmi um slíkt. „Það er 450 þúsund manna þjóð og þeir hafa tekið ákvörðun um það að þeir ætli sem þjóð að reyna að byggja meira á heilbrigðistúrisma til að styrkja sitt eigið heilbrigðiskerfi. Þeir ætla sér að fá heilsutúrista frá öðrum ríkjum Evrópu til sín vegna þess að með því auka þeir möguleika síns starfsfólks á störfum og halda betur í það, þannig að þeir eru meðvitað að fara út á þessa braut.“ Aðspurður segist Gunnar því vera ósammála Kára Stefánssyni um að heilbrigðistúrismi gangi ekki upp nema í undantekningartilvikum. „Það sem er í þessu er það að flest svona verkefni sem hafa farið af stað byggja að einhverju leyti á heimamarkaði og ég held að það sé það sem hann er að vísa til. Þetta verkefni hins vegar átti ekki að byggja á heimamarkaði en það var öðruvísi að því leytinu til að þarna vorum við með þekktan evrópskan lækni sem er með starfsemi annars staðar í Evrópu og hann ætlaði sjálfur, eða ætlar, að ávísa sjúklingum inn á þennan spítala,“ segir Gunnar. „Við erum á sumum sviðum í heilbrigðisþjónustunni á pari við það besta í Evrópu og sums staðar í fararbroddi. Þannig að mér finnst að við ættum frekar að nýta þau tækifæri og horfa til þess hvort við getum fengið sjúklega frá Evrópu inn í það kerfi. Og ef við værum komið með einkarekinn spítala á einhverju sviði þá væri það strax búið að brjóta ísinn og gæti þá auðveldað hinu opinbera að laða til sín sjúklinga og auðvelda því a halda sínu starfsfólki. Hugsanlega fá þá meiri skatttekjur frá þessari einkareknu lausn, það eru margir vinklar á þessu.“
Tengdar fréttir "Læknisfræðitúrismi hefur reynst vera erfiður bissness“ Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 26. júlí 2016 10:30 Félög Middeldorps ekki með starfsleyfi í Hollandi Félög sem sögð eru eiga að fjármagna nýtt sjúkrahús í Mosfellsbæ eru ekki með starfsleyfi til að sinna eignastýringu í Hollandi. Þau eiga þó að vera með minnst um 50 milljarða í eignastýringu. 30. júlí 2016 06:00 Mosfellsbær úthlutar lóð fyrir einkaspítala Áætlað er að kostnaður við verkefnið nemi 54 milljörðum króna. 21. júlí 2016 09:59 Segir heilbrigðiskerfið sjálft grafa undan sér Stjórnarformaður félags sem hyggst reisa einkaspítala í Mosfellsbæ segir ekkert heilbrigðiskerfi hér á landi til að rústa líkt og Kári Stefánsson hélt fram að spítalinn myndi gera. 26. júlí 2016 07:00 Lofa fjárfestum í einkaspítala sex prósenta ávöxtun Fjárfestum sem leggja fé í nýtt einkarekið sjúkrahús og hótel er lofað árlegum arðgreiðslum upp á sex prósent af fjárfestingu sinni. 22. júlí 2016 07:00 Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira
"Læknisfræðitúrismi hefur reynst vera erfiður bissness“ Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 26. júlí 2016 10:30
Félög Middeldorps ekki með starfsleyfi í Hollandi Félög sem sögð eru eiga að fjármagna nýtt sjúkrahús í Mosfellsbæ eru ekki með starfsleyfi til að sinna eignastýringu í Hollandi. Þau eiga þó að vera með minnst um 50 milljarða í eignastýringu. 30. júlí 2016 06:00
Mosfellsbær úthlutar lóð fyrir einkaspítala Áætlað er að kostnaður við verkefnið nemi 54 milljörðum króna. 21. júlí 2016 09:59
Segir heilbrigðiskerfið sjálft grafa undan sér Stjórnarformaður félags sem hyggst reisa einkaspítala í Mosfellsbæ segir ekkert heilbrigðiskerfi hér á landi til að rústa líkt og Kári Stefánsson hélt fram að spítalinn myndi gera. 26. júlí 2016 07:00
Lofa fjárfestum í einkaspítala sex prósenta ávöxtun Fjárfestum sem leggja fé í nýtt einkarekið sjúkrahús og hótel er lofað árlegum arðgreiðslum upp á sex prósent af fjárfestingu sinni. 22. júlí 2016 07:00