Bíó og sjónvarp

Game of Thrones: Veturinn er loksins kominn

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/HBO
Ef þú, lesandi kær, hefur ekki horft á Game of Thrones í sumar, er best fyrir alla að þú hættir við að lesa þessa grein.



Fjallað verður um ýmislegt sem hefur gerst í sjöttu þáttaröðinni og þá sérstaklega í síðasta þættinum sem sýndur var á sunnudaginn og í gær.



Ég viðurkenni að ég þekki ekki alveg við hvaða tilefni þetta GIF hér að neðan var gert, en það er svo sem ekkert verra en önnur GIF þarna úti.

Sjötta þáttaröð Game of Thrones endaði svo sannarlega með tilþrifum. Ljóst er að minnst nokkrir mánuðir liðu í þættinum og gerðist nú ansi margt. Okkur hefur verið hótað vetri í sex ár. Ned Stark byrjaði að hóta því í fyrstu þáttaröð, en loksins er veturinn skollinn á. Með honum getur raunverulega orustan byrjað. Stríðið á milli hinna lifandi og hinna dauðu.

Fjölmargar persónur létu lífið við misóþægilegar aðstæður og Cersei púllaði glottið sitt fræga. Umræðan er strax komin á þann veg að Lena Headey eigi jafnvel að fá óskarsverðlaun fyrir glottið.

Cersei Lannister er orðin drottning í Kings Landing eftir að hún sprengdi upp The Great Sept of Baelor. Óhætt er að segja að fjölmargir hafi látið lífið í þeirri sprengingu og þar á meðal fjöldinn allur af karakterum sem hafa verið lengi í þáttunum. Áhugaverður punktur er að hún gerði svipaðan hlut og óði konungurinn ætlaði sér að gera og Jaime Lannister drap hann fyrir. Hún brenndi reyndar bara hluta borgarinnar og Aerys ætlaði að brenna borgina alla, en Jaime virtist ekki hafa tekið þessu vel.

Sonur Cersei og Jaime, Tommen Baratheon, virðist hafa tekið ódæði móður sinnar eitthvað illa. Í einhverju æði ruglaðist hann varðandi nafnið á Kings Landing. Það er líklega ekki meint bókstaflega :)

Þetta var samt skuggalegt atriði. Cersei var búin að myrða nánast alla stuðningsmenn Tommen og hundruð saklausra borgara. Allt frá því að hann var konungur hafði honum verið stýrt af öðru fólki. Fyrst Tywin Lannister, svo Margaery TyrellKevan LannisterHigh Sparrow og fleiri. Hann virðist hafa tekið þá einu leið sem hann gat farið á eigin forsendum.

Nornin Maggy The Frog hafði því rétt fyrir sér þegar hún spáði því að börn Cersei myndu öll deyja á undan henni. Dauði Tommen var þó beinlínis henni að kenna og það er enn ein ástæða þess að við munum líklega sjá Jaime fjarlægast Cersei enn frekar.

Áhorfendur fengu einnig að sjá andlitið á hinum steindauða Gregor Clegane, sem leikinn er af Íslendinginum Hafþóri Júlíusi Björnssyni og hefur hann birst þó nokkuð á skjám áhorfenda í sumar. Þetta er þó í fyrsta sinn sem við fáum að sjá andlitið á honum.

Cersei fangaði nunnuna Unella, sem hafði kvalið Cersei lengi og borgaði henni fyrir kvalirnar. Lena Headey, sem leikur Cersei, sagði að það atriði hefði upprunalega verið mun grimmilegra og örlög nunnunnar verri, en framleiðendur þáttanna hafi gugnað á því að sýna það.

Þar að auki segir Headey að hún búist ekki við því að Cersei muni sitja lengi í hásætinu. Þar sem enginn yfirgefi þetta tiltekna sæti á lífi segist hún vonast til þess að Arya eða Tyrion drepi Cersei.

Fyrstu tuttugu mínútur þáttarins, voru einstaklega vel gerðar. Tónlistin, andrúmsloftið og í rauninni bara allt. Þá var morðið á Grand Maester Pycelle alveg einstaklega krípí, þar sem fullt af litlum börnum stungu hann margsinnis. Líklegast er þó nánast öllum sama um að hann sé dauður. Nema kannski einni konu en hann skuldaði henni pening.

Hvíti úlfurinn, Jon Snow (Targaryen), er nýr konungur norðursins. Eflaust væri réttara að segja Jon Sand, þar sem það er eftirnafn bastarða sem fæðast í Dorne, þar sem Tower of Joy, fæðingarstaður Jon, er staðsettur. Jon Targaryen er bara eitthvað svo frábært nafn.

Lávarðar norðursins gerðu hann að konungi eftir að uppáhalds persóna okkar allra, Lyanna Mormont, sendi þeim tóninn í frábærri ræðu.

Það er nokkuð áhugavert að hann var gerður að konungi fyrir að vera sonur Ned Stark. Hvað gerist þegar Bran Stark, lögmætur erfingi Ned, kemur suður og Jon og/eða aðrir komast að því að hann er ekki sonur Ned, heldur sonur Rhaegar Targaryen (það var ekki beinlínis sagt en við gerum ráð fyrir því) og Lyönnu Stark? Hann á mun sterkari kröfu á hásætið í Kings Landing, en nokkurn tímann á Winterfell og norðrið.

Atriðið þegar Jon var gerður að konungi er nánast alveg eins og þegar Robb var gerður að konungi. Í stað Sönsu sat Catelyn Stark á vinstri hönd Robb Stark.

Jon tók þá ákvörðun að senda Melisandre suður, annars myndi hann láta hengja hana fyrir morðið á Shireen Baratheon. Melisandre brenndi hana í síðustu þáttaröð til að stöðva óveður sem var að koma verulega niður á her Stannis Baratheon. Óveðrið hætti, Selyse, eiginkona Stannis og móðir Shireen, hengdi sig og Stannis og nánast allir menn hans voru drepnir.

Jon veit að Melisandre gæti komið sér vel í stríðinu við hina dauðu en hann ákveður samt að vera heiðvirðlegur og senda hana á brott. Þegar meðlimir Stark fjölskyldunnar fara að sýna heiður eiga þeir til að vera myrtir. Við skulum vona að það komi ekki (aftur) fyrir Jon.

Kenningunni um að Bran muni gera hinum ódauðu kleift að komast í gegnum Vegginn fékk byr undir báða vængi í þættinum. Þegar Benjen Stark sagðist ekki komast í gegnum vegginn vegna galdra sem hann væri búinn. Galdrar sem Börn skógarins framkvæmdu. Sambærilegrir galdrar og voru í hellinum þar sem Þriggja augna hrafninn var.

Sjá einnig: Uppruni, klúður og dauði.

Samkvæmt kenningunni mun hinir ódauðu komast í gegnum vegginn vegna þess að Næturkonungurinn merkti Bran. Útlit er fyrir að merkið eyði göldrunum.

Daenerys Targaryen, frænka Jon, er LOKSINS á leiðinni til Westeros með risastóran her, fjölda skipa og þrjá dreka. Þar að auki virðist sem að Varys hafi tryggt henni aðstoð Dorne og Highgarden þar sem Olenna Tyrell tók því ekki vel að Cersei myrti nánast alla fjölskyldu sína.

Líklega mun hún þó lenda í einhverjum vandræðum á leið sinni þar sem Euron Greyjoy er enn í spilinu og flotinn hans hefur líklegast verið smíðaður.

Fyrr í þáttaröðinni var hann krýndur konungur Járneyjanna og ætlaði hann sér að sigla Járnflotanum til Mereen, giftast Daenerys og nota hana og drekana til þess að hertaka konungsríkin sjö. Strax eftir að hann var krýndur ætlaði hann að drepa Theon og Yöru. Þau stálu hins vegar stórum hluta Járnflotans og flúðu. Þau ætla sér að nota Daenerys til þess að ná völdum á Járneyjunum.

Líklegast mun þeim öllum mistakast.

Í viðtali við Entertainment Weekly sagði Emilia Clarke að veturinn væri að koma, en hún væri á leiðinni með hitann. (Þetta þýðist hræðilega: Winter is coming ... and I'm bringing the heat!)

Arya Stark virðist vera orðin nokkuð morðóð. Hún myrti tvo syni Walder Frey, skar þá niður í bita og bakaði köku úr þeim. Sem er ekki það girnilegasta. Þetta var frekar „brútal“ atriði, en rosalega var það gott. Arya er komin aftur til Westeros og hún virðist ætla að fara yfir listann sinn góða.

Ohhh þetta var svo gott

Í því samhengi má benda á að Melisandre er einnig á listanum hennar Aryu og Jon T, er búinn að reka hana úr norðrinu. Munu þær mögulega hittast í næstu þáttaröð?

Littlefinger virðist ekki vera alveg jafn mikill drullusokkur og ég held (ennþá) að hann sé. Hann var þó greinilega ekki sáttur þegar Jon var gerður að konungi norðursins, þar sem Petyr Baelish var nýbúinn að segja Sönsu að hann vildi verða konungur Konungsríkjanna sjö og hann vildi að hún yrði drottningin hans. Sem er hálf skrítið miðað við að hann seldi hana til Ramsay Bolton sem misþyrmdi henni um langt skeið.

Það var þó eitthvað í gangi á milli þeirra í atriðinu þegar Jon var gerður konungur. Sansa virtist vera að hugsa: „Fuck it“

Meðan allt þetta gekk á og Westeros fór nánast á hliðina, fór Samwell Tarly á bókasafnið. Hann verður líklega þar, þar til pabbi hans dregur hann út og myrðir hann fyrir að stela sverðinu sínu.

Eins og áður hefur komið fram verður sjöunda þáttaröð Game of Thrones eingöngu sjö þættir. Sjöundu bók George RR Martin verður skipt niður í tvær þáttaraðir og líklegast verður áttunda þáttaröðin eingöngu sex eða sjö þættir einnig. Game of Thrones eru mjög dýrir þættir í framleiðslu, en við skulum vona að þeir muni fá meiri pening til að moða úr.

Ástæða þess að við höfum lítið séð til úlfsins Ghost í þessari þáttaröð (og þá sérstaklega Battle of the Bastards) er til dæmis sú að ekki þótti það borga sig peningalega séð að koma honum fyrir í þáttunum með tölvubrellum.

Að öllum líkindum munu þeir þættir sem eftir eru einblína á innrás The White Walkers í Westeros og baráttuna gegn þeim. Enn er þó nokkrum spurningum ósvarað. Meðal annars er ein spurning um kenninguna um að drekinn hafi þrjú höfuð.

Sjá einnig: Hver er söguhetja Game of Thrones?

Sú kenning felur í sér að Daenerys á þrjá dreka og það þurfi þjrá aðila til að ríða þeim í orustu. Auk hennar sjálfrar eru tveir aðilar sem koma sterklega til greina. Það er auðvitað Jon, sem er hálfur Targaryen og hinn sem þykir líklegastur er sjálfur Tyrion Lannister.

Lengi hafa verið uppi vangaveltur um að hann sé í raun ekki sonur Tywin Lannister og eiginkonu hans Joanna Lannister, sem lést við fæðinguna. Öll þrjú eiga það til dæmis sameiginlegt að mæður þeirra létust við fæðinguna. Fyrr í þáttaröðinni mátti sjá Tyrion tala við tvo af drekum Daenerys. Þar sem þeir drápu hann ekki og átu þykir sú kenning nú vera mjög líkleg.

Það væri óneitanlega skemmtilegt að sjá þau þrjú berjast gegn WW með drekunum.

Spurningum ósvarað?

Hvað mun Arya gera? Hún sagði fyrr í þáttaröðinni að hún ætlaði aftur til Winterfell. Ef hún fer þangað og Bran einnig fáum við líklegast að sjá fjögur af Stark börnunum saman aftur frá því í fyrsta þætti Game of Thrones.

Mun Sansa ákveða að giftast Littlefinger? Ef svo er myndi hún mögulega þurfa að berjast við Daenerys og hennar lið um hásætið.

Hverju hvíslaði Lyanna Stark að Ned? Við fengum loksins að sjá hverjir foreldrar Jon eru, en hún sagði eitthvað sem við fengum ekki að heyra.

Stærsta spurningin sem á þó eftir að svara er líklega: Hvað var Frank Hvam að gera í Game of Thrones? Ég verð að viðurkenna að ég sprakk úr hlátri bara við það að sjá hann þarna.


Tengdar fréttir

Trúður í Game of Thrones

Danski grínleikarinn Frank Hvam birtist óvænt í lokaþætti sjöttu seríu Game of Thrones.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×