Fyrsti leikur án Helenu í tólf ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2016 06:00 Helena Sverrisdóttir hefur verið frábær með íslenska landsliðinu undanfarin ár og það verður fróðlegt að sjá hvernig liðið spjarar sig án hennar. Fréttablaðið/Ernir
31. júlí 2004 var sögulegur fyrir íslenska kvennalandsliðið því þá lék Anna María Sveinsdóttir síðasta landsleikinn sinn. Það er samt ekki það eina sem gerir þennan leik í fjallaríkinu Andorra sögulegan. Þetta var einnig síðasti keppnisleikur íslenska landsliðsins án Helenu Sverrisdóttur eða þar til í Slóvakíu á morgun. Íslenska kvennalandsliðið er komið til Piestany í Slóvakíu þar sem liðið spilar næstsíðasta leik sinn í undankeppni EM 2017 á morgun laugardag. Lokaleikur liðsins er síðan á móti Portúgal í Laugardalshöllinni í næstu viku. Landsliðsþjálfarinn Ívar Ásgrímsson fer ekkert í felur með hversu mikið munar um Helenu Sverrisdóttur sem var með 19,5 stig, 10,0 fráköst og 6,8 stoðsendingar í leik í fyrstu fjórum leikjunum.Hefur haldið uppi sókninni „Við vitum það að við erum að missa gríðarlega góðan sóknarmann í Helenu. Hún hefur verið að halda uppi okkar sóknarleik, ekki bara með því að skora mikið heldur einnig með því að búa mikið til,“ segir Ívar. „Það breytist mjög mikið hjá okkur. Við erum ekki með eins mikið af einstaklingsframtaki núna. Við þurfum að byggja mjög upp á liðsbolta þar sem stelpurnar eru að fría hver aðra og vinna saman. Stelpurnar þurfa að hreyfa sig miklu meira en þegar við vorum með Helenu,“ segir Ívar. Helena Sverrisdóttir er nú í barnsburðarleyfi og því ekki með íslenska liðinu. Hún spilaði alla keppnisleiki Íslands frá því að hún var sextán ára gömul á Norðurlandamótinu 2004 þar til að hún, nú á 28 aldursári, leiddi íslenska liðið til sigurs á móti Ungverjalandi í febrúar síðastliðnum.Ekki byrjaðar í skóla Tvær Keflavíkurstelpur spila fyrsta landsleikinn sinn á morgun en þær eru bara átján ára gamlar. Thelma Dís Ágústsdóttir og Emelía Ósk Gunnarsdóttir voru ekki byrjaðar í skóla þennan sumardag þegar Ísland mætti Lúxemborg á Promotion Cup í Andorra. Anna María Sveinsdóttir var stigahæst í kveðjuleiknum en hún fékk aldrei tækifæri til að spila við hlið Helenu í landsliðinu. Helena kom inn fyrir Önnu Maríu á Norðurlandamótinu í Arvika í Svíþjóð tæpum tveimur vikum síðar. Frá 1. ágúst 2004 hefur Helena verið með í öllum 48 mótsleikjum íslenska landsliðsins. Enginn leikmanna íslenska liðsins á morgun hefur spilað keppnisleik án þess að hafa Helenu sér við hlið. Lykilleikmaður eins og Pálína Gunnlaugsdóttir hefur aldrei spilað landsleik án þess að Helena sé í byrjunarliðinu.Nýliðar landsliðsins, Keflvíkingarnir Thelma Dís Ágústsdóttir og Emelía Ósk Gunnarsdóttir, eru báðar fæddar árið 1998. Þær voru því sex ára gamlar þegar Ísland lék síðast án Helenu Sverrisdóttur í keppnisleik. Fréttablaðið/VilhelmLeiðinlegt að missa Helenu „Það er mjög leiðinlegt að missa Helenu og hún er frábær leikmaður. Hún hefur verið stór partur af okkar sóknarleik en engu að síður þá opnast núna fleiri tækifæri. Við hinar verðum að grípa þau tækifæri,“ sagði Pálína sem leyfði sér aðeins að skjóta á samherja sinn til margra ára. „Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá fagna ég alveg pínu að fá fleiri skot en ég vona bara að hausinn verði rétt stillur og að ég setji þau niður. Ég held að þetta verði bara spennandi,“ segir Pálína. Hvort Pálína og félagar fái núna fleiri skot eins og hún grínaðist með á eftir að koma í ljós. Helena var vissulega mikið með boltann en hún dró líka mikið í sig. Hinar stelpurnar fengu því oft mikið pláss til að athafna sig. Nú þurfa aðrar að búa til vinnusvæðið fyrir bæði sig og aðra leikmenn. Helena spilaði nefnilega ekki aðeins alla þessa leiki heldur var hún í lykilhlutverki í liðinu.Stigahæst í 38 af 48 leikjum Helena skoraði alls 875 stig í þessum 48 keppnisleikjum sem gera 18,2 stig í leik og 26 prósent allra stiga íslenska liðsins. Það má heldur ekki líta fram hjá öllum stoðsendingum hennar á liðsfélagana í þessum leikjum. Hún er með 233 stoðsendingar í leikjunum eða 4,9 að meðaltali í leik. Helena hefur verið stighæst í 38 af 48 leikjum á þessum tólf árum sem er önnur mögnuð staðreynd alveg eins og að það þurfi að fara aftur um sjö ár til að finna leik í keppni þar sem Helena Sverrisdóttir var ekki stigahæst í íslenska liðinu (26. ágúst 2009, Birna Valgarðsdóttir á móti Írlandi). Það var alltaf vitað að það kæmi að þeim tímapunkti að Helena Sverrisdóttir væri ekki staðar fyrir landsliðið. Vonandi nýta stelpurnar sem núna eru í liðinu tækifærið til að vaxa og verða enn betri þegar Helena snýr aftur eftir barnsburðarleyfið. Maður kemur að sjálfsögðu í manns stað og þrátt fyrir að Helena hafi fengið mikla athygli og mikið lof fyrir framgöngu sína síðustu ár þá verður mikilvægi hennar ekki aðeins mælt í góðri tölfræði. Nú geta mótherjarnir einbeitt sér að því að stöðva aðra leikmenn íslenska liðsins og það er alvöru próf fyrir þær sem eftir standa.
Körfubolti Mest lesið Hamilton segir Ferrari þurfa nýjan ökumann því hann sé gagnslaus Formúla 1 Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Körfubolti United tilbúið að tapa miklu á Højlund Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Sport Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu Handbolti Marta mætti og bjargaði Brasilíu Fótbolti Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Enski boltinn Þessir þurfa að heilla Amorim Enski boltinn Messi meiddur af velli en Miami barðist til baka án hans Fótbolti „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Kristófer sendir frá sér yfirlýsingu: „Ekki ætlun mín að valda usla“ Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Sjá meira