Miðum fjölgað í The Color Run Stefán Árni Pálsson skrifar 31. maí 2016 16:30 Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri The Color Run á Íslandi.
Miðum í The Color Run by Alvogen litahlaupið í næstu viku hefur verið fjölgað en að óbreyttu hefðu upphaflegir miðar klárast í dag. „Miðasalan í hlaupið í fyrra gekk framar vonum og okkar upphaflegu áætlanir og pantanir á púðri og öðrum aðföngum miðuðu við sama fjölda og hljóp þá,” segir Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri The Color Run á Íslandi. „Þegar við sáum í hvað stefndi í sölunni fyrir um tveimur vikum hófumst við þegar handa við að tryggja okkur næg aðföng til að geta bætt miðum í hlaupið. Það er nú klárt og okkur því ekkert að vanbúnaði að bæta þúsund miðum í sölu,” segir Davíð og bætir við að aukabirgðirnar komi frá litahlaupum sem verði í Danmörku í lok sumars og gátu aðstandendur þeirra hlaupa hlaupið undir bagga því þar en enn nægur tími til stefnu. Útlit er fyrir að þeir miðar sem bætt hefur verið í sölu muni seljast upp miðað við söluna síðustu dagana í fyrra. „Þegar þessir miðar seljast upp þá getum við því miður ekki gert meira. Miðum verður ekki fjölgað umfram þetta þar sem við viljum tryggja sem besta og jákvæðasta upplifun allra sem hlaupa,” segir Davíð að lokum. Hlaupið fer fram í miðbæ Reykjavíkur þann 11. júní og er hlaupið nú haldið í annað sinn á Íslandi. Hér að neðan má sjá samantekt frá þessum skemmtilega degi í fyrra.
Mest lesið Jónas Sen sakaður um derring og meinfýsni Lífið Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Tónlist „Ekki ætlunin að særa heldur hrista aðeins upp í umræðunni“ Lífið „Allt annað að sjá einhvern sem var eins og ég“ Lífið Heillandi heimili Hönnu Stínu Lífið Hersir og Rósa greina frá kyninu Lífið Carmina Burana sem maður vill helst gleyma – hvað fór úrskeiðis í Hörpu? Gagnrýni Komdu með í ævintýri til Ítalíu Lífið samstarf Stóra stundin hjá þeim Rebekku og Ásgeiri Lífið Listrænn stjórnandi Bolshoj-ballettsins til margra áratuga látinn Menning Fleiri fréttir Stóra stundin hjá þeim Rebekku og Ásgeiri Hersir og Rósa greina frá kyninu „Allt annað að sjá einhvern sem var eins og ég“ „Ekki ætlunin að særa heldur hrista aðeins upp í umræðunni“ Heillandi heimili Hönnu Stínu Jónas Sen sakaður um derring og meinfýsni Arnar og Sigrún Heba selja glæsihús í Kópavogi Svanhildur Hólm fór holu í höggi Ástin blómstrar hjá Rósu Líf og Anahitu Væri til í fjörutíu eiginmenn og nokkra sykurpabba Biggi ekki lengur lögga Ásgeir og Hildur eiga von á stúlku Stefán Einar tók vel á því með Ísfélaginu Stjörnulífið: Bikiní dress vikunnar Ótrúlegustu atvik geta veitt innblástur Geggjaðar gellur í gæsun Grímu Thorarensen Felix kveður Eurovision Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Krakkatían: Eurovision, jarðskjálftar og dvergar Voru í sjötta sæti í undankeppninni Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Ísland fékk stig frá þessum löndum Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Íslendingar á samfélagsmiðlum: „Við hljótum að vinna þetta?“ Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur Bjarni Ara í íslensku dómnefndinni Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Sjá meira