Búið að skrifa undir kaupsamning vegna Ásmundarsalar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. maí 2016 15:37 Ásmundarsalur er staðsettur á Freyjugötu 41 í Þingholtunum. Vísir/Stefán
Alþýðusamband Íslands (ASÍ) og nýir eigendur Ásmundarsalar við Freyjugötu, hjónin Aðalheiður Magnúsdóttir og Sigurbjörn Þorkelsson, skrifuðu í dag undir kaupsamning vegna sölu Ásmundarsalar sem hýsti Listsafn ASÍ. Salan hefur verið umdeild en svo virðist sem að mistök hafi orðið til þess að hæsta tilboðinu í húsið hafi ekki verið tekið. Mistökin hafi falist í því að ekki bárust upplýsingar um þau tilboð sem gerð voru með réttum hætti. Hjónin Aðalheiður og Sigurbjörn greiddu 168 milljónir króna fyrir Ásmundarsal en fasteignamat hússins er 76,7 milljónir króna. Framkvæmdastjóri fasteignasölunnar Valhallar, Ingólfur Geir Gissurarson, sem annaðist söluna á Ásmundarsal harmar mistökin og sagði í samtali við Vísi að fasteignasalan muni sannarlega bera ábyrgð hafi hún sannarlega valdið tjóni. Í samtali við Vísi nú síðdegis sagði Ingólfur Geir að málinu væri lokið í sátt og samlyndi við ASÍ eftir að farið hafi verið yfir hvað fór úrskeiðis. Eftir það hafi allir aðilar hafi skilið sáttir.Kaupsamningurinn látinn standa þrátt fyrir athugun ASÍÞrátt fyrir athugun ASÍ á málinu var kaupsamningurinn við Aðalheiði og Sigurbjörn látinn standa og var hann undirritaður í dag. Nýju eigendurnir lögðu áherslu á að viðhalda list- og menningarhlutverki hússins þegar tilkynnt var um kaupin og í tilkynningu um undirritun kaupsamningins kemur fram að ASÍ fagnar „áformum hjónanna að nýta húsið áfram í þágu listar og hönnunar og óskar nýjum eigendum velfarnaðar á þeirri vegferð.“Sjá einnig: Fasteignasalan sem annaðist sölu á Ásmundarsal: Öxlum ábyrgð ef við höfum sannarlega valdið tjóniSamband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) hefur harðlega gagnrýnt söluna á Ásmundarsal en sambandið hafði hug á því að kanna hvort að það gæti keypt salinn. SÍM harmar það að safnið sé nú komið í einkaeigu þrátt fyrir fyrirheit um að húsið verði áfram nýttt undir lista- og menningarstarfsemi. „Þó að kaupandinn segist ætla að vera með myndlist og hönnun þá er þetta komið í einkaeigu og þá verða það alltaf útvaldir sem fá að sýna,“ sagði Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður SÍM í samtali við Fréttablaðið.
Tengdar fréttir Keyptu Ásmundarsal á 168 milljónir króna Fjárfestarnir og hjónin Sigurbjörn Þorkelsson og Aðalheiður Magnúsdóttir borguðu 168 milljónir fyrir Ásmundarsal á Freyjugötu en þar hefur Listasafn ASÍ verið með starfsemi um árabil. Fasteignamat hússins er 78,7 milljónir. 6. maí 2016 14:45 Fasteignasalan sem annaðist sölu á Ásmundarsal: Öxlum ábyrgð ef við höfum sannarlega valdið tjóni Forseti ASÍ segir hæsta tilboðinu í Ásmundarsal ekki hafa verið tekið. Framkvæmdastjóri fasteignasölunnar harmar stöðuna sem er komin upp. 18. maí 2016 12:24 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar Sjá meira
Keyptu Ásmundarsal á 168 milljónir króna Fjárfestarnir og hjónin Sigurbjörn Þorkelsson og Aðalheiður Magnúsdóttir borguðu 168 milljónir fyrir Ásmundarsal á Freyjugötu en þar hefur Listasafn ASÍ verið með starfsemi um árabil. Fasteignamat hússins er 78,7 milljónir. 6. maí 2016 14:45
Fasteignasalan sem annaðist sölu á Ásmundarsal: Öxlum ábyrgð ef við höfum sannarlega valdið tjóni Forseti ASÍ segir hæsta tilboðinu í Ásmundarsal ekki hafa verið tekið. Framkvæmdastjóri fasteignasölunnar harmar stöðuna sem er komin upp. 18. maí 2016 12:24