Vætusamt í næstu viku en hlýnar á Norðurlandi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 22. maí 2016 09:57 Svona lítur veðurkortið út fyrir kvöldið. Vísir/Vedur.is
Veður hefur verið með besta móti undanfarnar vikur og sjá landsmenn margir hverjir glitta í sumar. Í næstu viku hlýnar á Norðurlandi en spáð er mun minni sól en undanfarið auk þess sem bætir í rigningu. Í dag, sunnudag, verður norðvestan átta til þrettán stig norðaustan til og dálítil rigning og jafnvel slydda við ströndina. „Annars hægari vindur, skýjað með köflum eða bjartviðri og stöku skúrir, einkum síðdegis, en léttskýjað suðaustantil. Fremur hæg breytileg átt í nótt og skýjað með köflum,“ segir á vef Veðurstofunnar. Hlýjast verður suðvestan til í dag eða þrjú til fjórtán stig. „Suðlæg átt á morgun fimm til tíu stig. Skýjað og dálítil rigning með köflum um landið vestanvert, en þurrt og bjart austantil.“ Hiti verður sjö til fimmtán stig á morgun, hlýjast norðaustantil. „Ákveðin norðvestan átt og dálítil rigning eða slydda norðaustantil á landinu í dag og svalt í veðri, en annars hægari vindur og víða þurrt og bjart. Umbreyting verður á veðrinu á morgun, en þá snýst í suðlæga átt með dálítilli vætu vestantil á landinu, en léttir til og hlýnar ört norðaustantil,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á mánudag: Fremur hæg suðlæg átt og léttskýjað með köflum á A-verðu landinu, en dálítil væta suðvestan- og vestantil. Suðaustan 8-13 og rigning V-lands um kvöldið. Hiti yfirleitt 5 til 10 stig. Á þriðjudag og miðvikudag: Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og rigning um landið vestanvert, en heldur hægari og þurrt og bjart norðaustan- og austanlands. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast NA-til. Á fimmtudag: Suðvestanátt og bjartviðri um landið austanvert, en annars smáskúrir. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast fyrir austan. Á föstudag og laugardag: Sunnan átt og víða dálítil rigning, en úrkomulítið austantil. Hlýtt í veðri, einkum norðaustantil.
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri fréttir Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Sjá meira