Kaupum Álfinn fyrir unga fólkið Arnþór Jónsson skrifar 10. maí 2016 07:00 Árleg álfasala SÁÁ hefst í dag og stendur næstu daga. Álfasalan er stærsta fjáröflunarverkefni SÁÁ ár hvert, en hún fer nú fram í 27. skipti. Líkt og undanfarin ár er slagorð álfasölunnar í ár: „Álfurinn fyrir unga fólkið.“ Þannig er undirstrikuð áhersla á meðferðarúrræði samtakanna fyrir ungt fólk og einnig fyrir börn og aðra aðstandendur þeirra sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða. Frá árinu 2000 hefur SÁÁ rekið unglingadeild á sjúkrahúsinu Vogi en frá því að sjúkrahúsið var byggt hafa yfir 8.000 einstaklingar yngri en 25 ára lagst þar inn. SÁÁ veitir einnig sálfræðiþjónustu fyrir börn alkóhólista. Um 1.100 börn hafa nýtt þá þjónustu sem er kostuð með tekjum af Álfinum og öðrum styrkjum. Tekjur af Álfasölu standa líka undir þjónustu SÁÁ við aðra aðstandendur en allir aðstandendur fólks í áfengis- og vímuefnavanda geta fengið viðtöl, ráðgjöf og setið á fyrirlestrum og fengið námskeið í fjölskyldumeðferð hjá SÁÁ. Hundruð manna um land allt starfa við Álfasöluna bæði einstaklingar en einnig fjölmargir hópar sem nýta sölulaun til að kosta starfsemi á vegum íþróttafélaga og ýmissa samtaka, hver í sinni heimabyggð. Frá 1990 hefur Álfurinn skilað um 600 milljónum króna sem hafa að öllu leyti runnið inn í heilbrigðisþjónustu SÁÁ við áfengis- og vímuefnasjúklinga. Þótt stjórnvöld hafi stutt vel við starf samtakanna í gegnum árin er það beinn stuðningur almennings sem hefur gert gæfumuninn. Þjóðin hefur stutt við bakið á SÁÁ og tryggt að samtökin geti veitt vímuefna- og áfengissjúklingum og fjölskyldum þeirra eins góða þjónustu og kostur er. Ef ekki væri vegna stuðnings almennings þyrfti að draga umtalsvert úr öllu starfi SÁÁ. Við sem störfum fyrir SÁÁ erum þakklát og finnum til auðmýktar vegna alls þess velvilja sem SÁÁ hefur notið og biðjum íslensku þjóðina nú um að standa enn sem fyrr þétt við bak samtakanna. Styðjum SÁÁ – Kaupum álfinn! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Árleg álfasala SÁÁ hefst í dag og stendur næstu daga. Álfasalan er stærsta fjáröflunarverkefni SÁÁ ár hvert, en hún fer nú fram í 27. skipti. Líkt og undanfarin ár er slagorð álfasölunnar í ár: „Álfurinn fyrir unga fólkið.“ Þannig er undirstrikuð áhersla á meðferðarúrræði samtakanna fyrir ungt fólk og einnig fyrir börn og aðra aðstandendur þeirra sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða. Frá árinu 2000 hefur SÁÁ rekið unglingadeild á sjúkrahúsinu Vogi en frá því að sjúkrahúsið var byggt hafa yfir 8.000 einstaklingar yngri en 25 ára lagst þar inn. SÁÁ veitir einnig sálfræðiþjónustu fyrir börn alkóhólista. Um 1.100 börn hafa nýtt þá þjónustu sem er kostuð með tekjum af Álfinum og öðrum styrkjum. Tekjur af Álfasölu standa líka undir þjónustu SÁÁ við aðra aðstandendur en allir aðstandendur fólks í áfengis- og vímuefnavanda geta fengið viðtöl, ráðgjöf og setið á fyrirlestrum og fengið námskeið í fjölskyldumeðferð hjá SÁÁ. Hundruð manna um land allt starfa við Álfasöluna bæði einstaklingar en einnig fjölmargir hópar sem nýta sölulaun til að kosta starfsemi á vegum íþróttafélaga og ýmissa samtaka, hver í sinni heimabyggð. Frá 1990 hefur Álfurinn skilað um 600 milljónum króna sem hafa að öllu leyti runnið inn í heilbrigðisþjónustu SÁÁ við áfengis- og vímuefnasjúklinga. Þótt stjórnvöld hafi stutt vel við starf samtakanna í gegnum árin er það beinn stuðningur almennings sem hefur gert gæfumuninn. Þjóðin hefur stutt við bakið á SÁÁ og tryggt að samtökin geti veitt vímuefna- og áfengissjúklingum og fjölskyldum þeirra eins góða þjónustu og kostur er. Ef ekki væri vegna stuðnings almennings þyrfti að draga umtalsvert úr öllu starfi SÁÁ. Við sem störfum fyrir SÁÁ erum þakklát og finnum til auðmýktar vegna alls þess velvilja sem SÁÁ hefur notið og biðjum íslensku þjóðina nú um að standa enn sem fyrr þétt við bak samtakanna. Styðjum SÁÁ – Kaupum álfinn!
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar