Óásættanlegt að láta börn kaupa námsgögn Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 13. maí 2016 07:00 Barnaheill segja að skólinn eigi að útvega öll gögn, hvort sem það eru ritföng eða annað. vísir/vilhelm
Mörgum þúsundum króna getur munað á þeim kostnaði sem foreldrar barna í 1. bekk í grunnskóla þurfa að bera vegna kaupa á námsgögnum. Þetta eru niðurstöður könnunar á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga. „Við skoðuðum heimasíðu Heimkaupa sem voru búin að verðgreina innkaupalista skólanna. Þetta er ekki vísindaleg könnun og hún er ekki 100 prósent örugg en hún gefur vísbendingu um að kröfurnar sem skólarnir gera séu gríðarlega mismunandi,“ segir Þórður Kristjánsson, sérfræðingur hjá sambandinu. Hann segir könnunina hafa verið gerða síðastliðið haust í kjölfar ábendingar Barnaheilla um kostnað vegna námsgagna og áskorunar um að grunnskólinn verði í raun gjaldfrjáls eins og kveðið er á um í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Barnaheillum, segir að foreldrar með þrjú börn gætu þurft að greiða allt frá fáeinum þúsundum til tuga þúsunda króna fyrir námsgögn að hausti. Það geti verið þungur baggi fyrir marga foreldra. „Þetta er algjörlega óásættanlegt í samfélagi þar sem grunnskóli á lögum samkvæmt að vera gjaldfrjáls.“ Þórður segir Samband íslenskra sveitarfélaga hafa sent skólanefndum minnisblað og vakið athygli á þessu. „Það getur jafnvel verið mikill munur milli skóla í sama sveitarfélagi. Við höfum ekkert boðvald yfir sveitarfélögum en við getum aflað upplýsinga og bent þeim á þær. Það er sveitarfélaganna að bregðast við því.“Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnisstjóri hjá BarnaheillumAð sögn Margrétar Júlíu er glufa í grunnskólalögunum varðandi kaup á gögnum. „Í lögunum segir að rukka megi fyrir gögn til persónulegra nota. Er kannski stílabókin sem nemendur nota til að reikna stærðfræðidæmi til persónulegra nota? Barnaheill líta svo á að skólinn eigi að útvega öll gögn sem hann gerir ráð fyrir að nemandi hafi tiltæk, hvort sem um er að ræða ritföng, pappír eða annað. Við ítrekum áskorun okkar um að grunnskólalögunum verði breytt þannig að tekið verði fyrir alla gjaldtöku svo að grunnskólinn verði í raun gjaldfrjáls eins og kveðið er á um í barnasáttmálanum. Þannig verður börnum ekki lengur mismunað vegna stöðu þeirra eða foreldra þeirra.“Þórður Kristjánsson, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélagaBarnaheill beina þeim tilmælum til skólastjórnenda að leita leiða þar til lögunum hafi verið breytt til að ekki þurfi að rukka foreldra. „Þeir þurfa að hugsa um hvað þeir komist af með og hvað þeir eigi innanhúss sem hægt sé að nýta. Það þarf að horfa heildrænt á þetta en ekki á hvað hverjum og einum kennara þykir nauðsynlegt að nemendur kaupi.“ Í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag hvetja Barnaheill stjórnvöld til að setja skýrar reglur um þessi mál.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 13. maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira