Hrafnar hrella hreinláta Hafnfirðinga Jakob Bjarnar skrifar 17. maí 2016 13:46 Hrafnarnir í Hafnarfirði eru klókir að stinga sér ofan í ruslaföturnar, og róta uppúr þeim Hafnfirðingum til nokkurs ama.
Hrafnar gera nú hreinlátum Hafnfirðingum lífið leitt – þeir stunda það, einkum snemma að morgni dags þegar fáir eru að ferli, að róta í rusladöllum bæjarins og draga uppúr þeim draslið. Þegar svo Hafnfirðingar fara á kreik er sóðaskapurinn það sem við blasir. Bæjaryfirvöld standa nánast ráðþrota gagnvart þessum vanda. Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs í Hafnarfjarðarkaupstað, segir að þar sé mikið lagt uppúr því að hafa bæinn hreinan og snyrtilegan. „Nú stendur yfir sérstakt hreinsunarátak í bænum þar sem bæjarbúar og forsvarsmenn fyrirtækja hafa verið ákaflega duglegir að hreinsa og snyrta í kringum sig, en hrafnarnir eru sumsé ekki að leggja sitt af mörkum, eru yfir þetta hafnir.“ Þó þetta sé hvimleitt er Rósa ekki alveg laus við að hafa húmor fyrir þessu. Hún segist ekki vita hvort þetta sé vandamál í öðrum bæjarfélögum eða hvort hrafnarnir í Hafnarfirði séu óvenju gáfaðir, eða jafnvel heimskir, eftir atvikum; að taka ekki virkan þátt í hreinsunarátakinu? „Ég mætti til starfa snemma í morgun og þá var Haraldur bæjarstjóri L. Haraldsson að tína upp ruslið eftir hrafnana á Strandgötunni. Ég veit ekki hvort sé sérstakt hafnfirskt vandamál en krummarnir hér eru klókir að stinga sér ofan í ruslaföturnar. En í alvöru talað þá hef ég spurt út í það til umhverfis- og framkvæmdasviðs hvort einhvern tíma hafi komið til greina að skipta út ruslafötunum fyrir dalla sem ekki er svo auðvelt að rífa draslið upp úr. Þetta er ákaflega hvimleitt en mávar hafa líka sótt í dallana.“ Rósa segir það sannarlega svo að í mörg horn sé að líta í sveitarstjórnarmálunum.
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Sjá meira