Í mótmælasvelti vegna synjunar á dvalarleyfi Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 19. maí 2016 07:00 Stephen Oyewole Ajemiare með þriggja ára son sinn. Fréttablaðið/Stefán „
Ég er algjörlega ráðalaus,“ segir Stephen Oyewole Ajemiare sem er kominn í hungurverkfall eftir að kærunefnd útlendingamála staðfesti synjun Útlendingastofnunar um dvalarleyfi hér á landi fyrir hann og fjölskyldu hans. Stephen og eiginkona hans, Salome Esteves Garcia Buabonah, eiga þriggja ára son og eins og hálfs árs dóttur sem eru í leikskóla í Reykjanesbæ. Þau komu til Íslands 2014 og eignuðust dóttur sína hér í desember það ár. Stephen er frá Nígeríu og Salome er frá Miðbaugs-Gíneu. Stephen er kristinn og Salome er múslimi. Mismunandi trú og uppruni eru meðal ástæðna þess að þau leita skjóls í Evrópu. „Framtíð barnanna minna og eiginkonu er í húfi. Það er vont að upplifa sig svo ráðþrota gagnvart því. Það stendur til að flytja okkur til Afríku, við vitum ekki til hvors landsins en það skiptir ekki máli. Börn okkar eiga enga framtíð í Afríku, þau eru fædd í Evrópu og dóttir okkar hér á Íslandi,“ segir Stephen á öðrum degi hungurverkfallsins. Salome er með sykursýki og þarf að sprauta sig fjórum sinnum á dag. „Verðum við send til Miðbaugs-Gíneu eða Nígeríu mun hún líklega ekki hafa ráð á meðferðinni,“ segir Stephen. Salome segir líf þeirra hér á landi hafa gengið vel. „Sonur minn hefur aðlagast vel í leikskólanum og þetta er gott samfélag. Ég skil ekki af hverju yfirvöld hér átta sig ekki á stöðu okkar, við höfum þó reynt að útskýra hana vel en hver sem er getur áttað sig á því hversu erfitt að það er fara allslaus til annars lands með lítil börn,“ segir Salome.Fréttin birtist í Fréttablaðinu 19. maí.
Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira