Sturridge skoraði alveg eins mark og Gummi Ben | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. maí 2016 14:55
Daniel Sturridge skoraði frábært mark fyrir Liverpool í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á St. Jakob-Park í Basel í gær. Markið dugði ekki til sigurs en er engu að síður eitt af flottustu mörkum Evrópudeildarinnar á þessu tímabili. Guðmundur Benediktsson var að lýsa úrslitaleiknum á Stöð 2 Sport og þar á meðal lýsti hann þessu stórglæsilega marki sem Daniel Sturridge skoraði í fyrri hálfleik. Glöggir menn voru fljótir að rifja það upp þegar Guðmundur sjálfur skoraði svipað snilldarmark og Sturridge gerði í Basel í gær. Það þarf reyndar að fara aftur um sextán ár en þetta var svona mark sem menn gleyma ekki svo auðveldlega. Mark Guðmundar Benediktssonar kom á móti Skagamönnum í 3. umferð Landssímadeild karla sumarið 2000 en leikurinn var spilaður upp á Akranesi. Í hlutverkum Brasilíumannanna Roberto Firmino og Philippe Coutinho voru þeir Einar Þór Daníelsson og Andri Sigþórsson. Daniel Sturridge fékk boltann frá Philippe Coutinho sem hafði áður fengið hann frá Roberto Firmino. Gummi Ben fékk boltann frá Andra Sigþórssyni sem hafði áður fengið hann frá Einari Þór Daníelssyni. Bæði Daniel Sturridge og Gummi Ben skoruðu mörkin sín með frábæru utanfótarskoti í fjærhornið. KR vann leikinn 2-0 en Andri Sigþórsson hafði komið KR í 1-0 átján mínútum fyrr. KR varð Íslandsmeistari annað árið í röð þetta sumar og Guðmundur var með 4 mörk og 5 stoðsendingar þetta sumar. Það er hægt að sjá skemmtilegan samanburð á þessum tveimur glæsilegu mörkum í spilaranum hér fyrir ofan. Það var Garðar Örn Arnarson sem setti þetta saman fyrir Vísi.
Enski boltinn Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira