Um ókosti þess að endurbyggja Kjalveg Guðmundur Ögmundsson skrifar 20. apríl 2016 07:00 Í byrjun apríl var á Alþingi borin fram tillaga til þingsályktunar um endurbyggingu vegarins yfir Kjöl. Þar er kallað eftir því að ríkisstjórnin kanni hagkvæmni og áhrif þess að vegurinn sé endurbyggður í einkaframkvæmd. Faglega unnin könnun ætti að leiða í ljós að framkvæmdin yrði í flesta staði óhagkvæm fyrir náttúru, ferðaþjónustu, byggðaþróun og almenning í landinu.Hagsmunir náttúru Sé litið á málið út frá hagsmunum náttúru þá er vaxtartími gróðurs á hálendinu mjög stuttur og jarðvegur óstöðugur. Hálendið þolir illa mikla umferð ferðamanna og í því ljósi er óábyrgt að beina þangað fleiri ferðamönnum undir því yfirskini að létta álagi af láglendinu. Núverandi Kjalvegur verndar náttúru svæðisins því hann takmarkar fjölda ferðamanna á svæðinu. Jafnframt koma færri á jaðartímanum þegar gróður og jarðvegur er hvað viðkvæmastur og varp fugla fer fram. Bættur vegur mun hins vegar fjölga ferðamönnum á svæðinu, bæði á jaðartíma og um hásumar, og hafa þannig neikvæð áhrif á náttúrufar á Kili, langt umfram það sem hlýst af þeim utanvegarakstri sem á sér þar stað í jaðri núverandi vegar.Hagsmunir ferðaþjónustu Mögulega má að einhverju leyti koma í veg fyrir neikvæð áhrif á náttúru með mikilli innviðauppbyggingu. Uppbygging innviða er aftur á móti ekki endilega rétta lausnin á Kili. Þær rannsóknir sem hafa verið gerðar þar á vegum Háskóla Íslands sýna að ferðamenn á Kili kæra sig lítið um bætta innviði. Þeir kjósa fámenni og helst enga uppbyggingu, eða þá einfalda uppbyggingu líkt og ferðafélögin á Íslandi hafa staðið fyrir. Með endurbyggingu Kjalvegar og frekari uppbyggingu á helstu áfangastöðum er verið að hrekja þessa ferðamenn í burtu, jafnt innlenda sem erlenda, og auka á einsleitni ferðamanna sem hingað til lands koma, þvert á hagsmuni ferðaþjónustunnar.Hagsmunir íbúa Ferðaþjónusta og byggðaþróun haldast líka fast í hendur. Síðastliðið haust kom hingað til lands C. Michael Hall, einn virtasti og afkastamesti fræðimaður á sviði ferðamálafræðinnar. Hann flutti erindi á Ferðamálaþingi og í Háskóla Íslands, og fullyrti í HÍ að ferðaþjónusta væri í eðli sínu svo óumhverfisvæn að það eina sem gæti réttlætt hana væri aukin hagsæld íbúa á þeim svæðum þar sem ferðaþjónustan fer fram. Það eru hins vegar engir íbúar á hálendi Íslands til að njóta góðs af þeirri ferðaþjónustu sem fer þar fram. Þess í stað þarf að flytja þangað um langan veg öll aðföng og starfsfólk, sem aftur felur í sér mikla óhagkvæmni í rekstri. Það er því augljóst að betra er að skipuleggja ferðaþjónustu á Íslandi þannig að meginþorri ferðamanna sé á láglendinu þar sem þeir stuðla að uppbyggingu innviða, auknu þjónustustigi og aukinni hagsæld fyrir samfélagið.Hagsmunir almennings Hálendi Íslands er eitt mesta víðerni Evrópu og það er okkar að standa vörð um að svo verði áfram. Endurbyggður Kjalvegur mun spilla þessu víðerni og rjúfa þann frið sem þar hefur ríkt til heilla ferðamönnum, farfuglum og jafnvel sauðkindum. Það þarf líka að gæta þess að við eigum eitthvað eftir fyrir okkur sjálf. Við erum nú þegar búin að eftirláta ferðaþjónustunni m.a. Þingvelli, Gullfoss og Geysi, en vonandi berum við gæfu til þess að hálendið fari ekki sömu leið. Því skora ég á Alþingi að tryggja að komandi kynslóðir Íslendinga geti notið töfra hálendisins án þess að þeir þurfi að olnboga sig í gegnum þvögu ferðamanna eða bruna í gegn á 90 km hraða á klukkustund. Ein leið til þess er að friðlýsa hálendið sem víðerni og huga svo að Kjalvegi með hliðsjón af því. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar