Myndbandið af Sigurði fjarlægt eftir að bent var á að það færi gegn reglum YouTube Birgir Olgeirsson skrifar 28. apríl 2016 20:36 Sigurður Einarsson.
Búið er að fjarlægja myndbandið af Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings, af YouTube. Myndbandið var tekið upp af vegfaranda við sumarhús í Norðurárdal í Borgarfirði dögunum sem var áður í eigu Sigurðar. Í myndbandinu mátti heyra Sigurð hóta myndatökumanninum barsmíðum ef hann færi ekki af svæðinu. Sigurður sagði þann sem tók upp myndbandið og samferðafólk hans vera við sumarhúsið í óleyfi og kom til orðaskaks á milli þeirra.Sjá einnig: „Farðu svo ég þurfi ekki að berja þig.“Myndbandið af Sigurði vakti gífurlega athygli í dag en það hefur nú verið fjarlægt af myndbandavef YouTube.Nú er búið að fjarlægja myndbandið af YouTube og birtist aðeins melding um að notandinn sjálfur, sem settið myndbandið inn, hafi fjarlægt það. Freyr Einarsson, talsmaður Sigurðar, segir í samtali við Vísi að send hafi verið tilkynning til YouTube fyrir hönd Sigurðar þar sem bent var á að myndbandið færi gegn skilmálum myndbandavefsins. „Myndbandið samræmdist ekki reglum sem YouTube-setur um birtingu á myndböndum. Það er verið að elta fólk með myndavél sem kærir sig ekki um að láta mynda sig og það er verið að mynda inn um glugga á prívateign. Það er til dæmis myndað bílnúmer á bíl og einhver manneskja sem dregst inn í þessa atburðarás sem hefur ekkert með þetta að gera,“ segir Freyr og bætir að brotið hafi verið nánast á öllum reglum YouTube með birtingu myndbandsins. Hann segir YouTube hafa í raun staðfest þessa tilkynningu með því að biðja notandann um að fjarlægja myndbandið af vefnum.
Tengdar fréttir Sigurður Einarsson: „Farðu svo ég þurfi ekki að berja þig“ Sigurður Einarsson segist hafa verið að verjast ágangi fólks sem hafi komið inn á einkaeign í leyfisleysi. 28. apríl 2016 14:57 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Forystan sé búin að missa klefann Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Sjá meira
Sigurður Einarsson: „Farðu svo ég þurfi ekki að berja þig“ Sigurður Einarsson segist hafa verið að verjast ágangi fólks sem hafi komið inn á einkaeign í leyfisleysi. 28. apríl 2016 14:57