Bent þarf að greiða hálfa milljón í skaðabætur vegna líkamsárásar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. maí 2016 10:00 Árásin átti sér stað aðfaranótt 14. mars í fyrra. Vísir
Leikstjórinn og rapparinn Ágúst Bent Sigurbertsson þarf að greiða Friðriki Rafni Larsen, stjórnarformanni ÍMARK, 488 þúsund krónur í skaðabætur vegna líkamsárásar á skemmtistaðnum Loftinu í Austurstræti í mars í fyrra. Þá var Bent dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi og þarf því ekki að sitja inni nema hann gerist brotlegur á skilorðstímanum sem er tvö ár. Bent játaði að hafa ráðist á Friðrik á skemmtistaðnum og slegið hann ítrekuðum hnefahöggum í andlitið. Hins vegar var deilt um afleiðingarnar fyrir dómi. Afleiðingar árásarinnar voru þær, að því er segir í ákæru, að Friðrik „hlaut ótilfært brot á vinstra nefbeini, bólgur og mar á nefi og augnsvæði og sprungna vör.“ Friðrik fór fram á fjórar milljónir króna í skaðabætur en fékk sem fyrr segir rúmlega tólf prósent af þeirri upphæð, tæpa hálfa milljóna króna.Verið meira eins og „Jón Jónsson“ „Ég get kannski ekki sagt ítarlega frá því hvað gerðist en ég skeit í raun bara á mig. Ég gerði mistök og missti mig í fimm sekúndur og það mun draga dilk á eftir sér í töluvert lengri tíma en það,“ sagði Bent um líkamsárásina í útvarpsþættinum FM95Blö í apríl í fyrra.Fjölmargir aðilar úr auglýsingabransanum voru saman komnir á Loftinu þetta kvöld að lokinni ÍMARK-hátíðinni sem haldin var í Háskólabíói. Fjölmenni var á staðnum og urðu margir vitni að árásinni.„Fyrir þá ungu hlustendur sem eru að spá í því að kýla einhvern, ekki gera það. Það gefur lítið af sér og fokkar þér upp lengi. Verið meira eins og Jón Jónsson og minna eins og ég,“ sagði Bent.Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 19. febrúar síðastliðinn en hann hefur af einhverjum ástæðum ekki verið birtur á vef dómstólsins.
Mest lesið Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Innlent Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Innlent Fleiri fréttir Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Stýra fjármálum og mannauðsmálum Þjóðleikhússins Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Ekið á konu á Langholtsvegi Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Undrandi á ráðningu ráðgjafa „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Sjá meira