Innlent

Flýta flugferðum vegna lokunar á Reykjavíkurflugvelli

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tvær lendingar voru áætlaðar á Reykjavíkurflugvelli eftir klukkan átta í kvöld, önnur frá Akureyri og hin frá Egilsstöðum.
Tvær lendingar voru áætlaðar á Reykjavíkurflugvelli eftir klukkan átta í kvöld, önnur frá Akureyri og hin frá Egilsstöðum. vísir/vilhelm
Reykjavíkurflugvöllur verður aðeins opinn fyrir sjúkra- og neyðarflug frá klukkan 20 til klukkan sjö í fyrramálið. Þetta er vegna yfirvinnubanns hjá Félagi flugumferðarstjóra.

Aðeins einn flugumferðarstjóri verður á vaktinni á þessum tíma til þess að sinna neyðartilvikum ef þau koma upp. Hann mun þó ekki sinna öðru flugi.

Tvær lendingar voru áætlaðar á Reykjavíkurflugvelli eftir klukkan átta í kvöld, önnur frá Akureyri og hin frá Egilsstöðum. Hefur þeim verið flýtt. Þá hefur flugi frá Nuuk á Grænlandi verið aflýst.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×