John Kerry: Bandaríkin hefðu verið í fullum rétti að skjóta niður rússnesku herþoturnar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. apríl 2016 22:35 Mynd sem Bandaríkjaher hefur birt af atvikinu. Mynd/EUCOM
Bandaríski herinn hefði verið í fullum rétti til þess að skjóta niður rússnesku herþoturnar sem flugu ítrekað yfir bandarískt herskip á Eystrasalti í vikunni. Þetta segir John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. „Við fordæmum slíka hegðun. Hún er gáleysisleg, ögrandi og hættuleg,“ sagði Kerry í viðtali við fjölmiðla í Bandaríkjunum í dag. „Undir gildandi reglum um bardaga hefðum við verið í fullum rétti til þess að skjóta þær niður.“ Tvær rússneskar herþotur flugu ítrekað ískyggilega nálægt bandaríska herskipinu USS Donald Cook í vikunni. Skipið var statt á alþjóðlegu hafsvæði í Eystrasaltinu þegar herþoturnar, rússneskar Sukhoi SU-24, flugu allt að 12 sinnum yfir skipið. Atvikin áttu sér stað á mánudag og þriðjudag en engin vopn voru sjáanleg á þotunum. Skipstjóri herskipsins segir að líklega hafi herþoturnar verið að herma eftir árás á skipið. John Kerry segir að skilaboðum hafi verið komið áleiðis til Rússland um að slík hegðun væri ekki boðleg og að bandaríski herinn myndi ekki láta ógna sér á hafi úti. Rússneska varnarmálaráðuneytið segir að herþoturnar hafi fylgt öllum öryggisviðmiðum er þær flugu yfir bandaríska herskipið.Myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.
Tengdar fréttir Rússneskar herþotur flugu ískyggilega nálægt bandarísku herskipi á Eystrasaltinu Skipstjóri herskipsins segir að líklega hafi herþoturnar verið að herma eftir árás á skipið. 13. apríl 2016 20:43 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira
Rússneskar herþotur flugu ískyggilega nálægt bandarísku herskipi á Eystrasaltinu Skipstjóri herskipsins segir að líklega hafi herþoturnar verið að herma eftir árás á skipið. 13. apríl 2016 20:43