Formúla 1

Rosberg: Ræsingin var lykillinn að þessu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg fagnaði gríðarlega enda búinn að vinna fimm keppnir í röð.
Nico Rosberg fagnaði gríðarlega enda búinn að vinna fimm keppnir í röð. Vísir/Getty
Nico Rosberg kom fyrstur í mark á Mercedes bílnum. Formúlu 1 keppnin í Bahrein var spennandi frá upphafi til enda. Það var mikið um fram úr akstur en Rosberg var ekki ógnað af viti. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Rosberg vann sína 16. keppni á ferlinum í dag, sína fimmtu í röð og aðra í röð á tímabilinu. Hann leiddi örugglega eftir slaka ræsingu liðsfélaga síns, Lewis Hamilton. Rosberg er núna 17 stigum á undan Hamilton í heimsmeistarakeppni ökumanna. Það hefur enginn annar unnið Formúlu 1 keppni, síðan í Austin Texas í fyrra þegar Hamilton tryggði sér heimsmeistaratitilinn.

„[Valtteri] Bottas var um að kenna, hann bremsaði allt of seint og lenti á miðjum bíl Hamiltons sem gat ekkert gert,“ sagði Niki Lauda sérstakur ráðgjafi Mercedes liðsins um árekstur Hamilton og Bottas í fyrstu beygju.

„Ræsingin var lykillinn að þessu. Það var frábært að ná öðrum sigri. Við náðum að stjórna keppninni,“ sagði Rosberg á verðlaunapallinum.

„Ég átti slaka ræsingu, við vorum þó fljótlega rétt á eftir Nico. Það var lítið sem ég gat gert eftir það. Það er leiðinlegt að hinn bíllinn hafi ekki náð að klára en þetta er eins gott og við gátum í dag,“ sagði Kimi Raikkonen á verðlaunapallinum.

„Báðar ræsingarnar voru slæmar, bæði hér og í Ástralíu. Þær eru þó ekki tengdar. Bíllinn var skaddaður og ég gat því ekki haldið í við Kimi,“ sagði Hamilton á verðlaunapallinum.

Stoffel Vandoorne kom inn til að aka bíl Fernando Alonso og stóð sig mjög vel. Hann náði í stig fyrir McLaren liðið með frábærum akstri.Vísir/Getty
„Ég reyndi að njóta helgarinnar frá upphafi til enda. Ég vissi að ég gæti þetta, ég vildi bara passa að gera engin mistök og það tókst. Keppnin var skemmtileg og fyrsti hringurinn var svakalegur. Bíllinn var góður í dag. Það voru kannski smá tækifæri til að ná í fleiri stig en það kemur með meiri reynslu,“ sagði Stoffel Vandoorne sem varð 10. á McLaren bílnum í fjarrveru Fernando Alonso.

„Ræsingin var áhugaverð, ég kom ekki hratt inn í fyrstu beygju. Framvængurinn varð fyrir tjóni í fyrstu beygjunni og ég var hræddur um að ég þyrfti að koma inn til að skipta um væng en við létum þetta sleppa,“ sagði Daniel Ricciardo sem varð fjórði á Red Bull bílnum.

„Ræsingin virkaði ekki fullkomlega fyrir Kimi [Raikkonen]. Hann sagðist ekki hafa náð fullkominni ræsingu,“ sagði Jock Clear, verkfræðingur Ferrari liðsins.

„Það er margt sem við getum bætt, við verðum að halda fótunum á jörðinni en þessi keppni var klikkuð. Það var ótrúlegt að berjast við Williams, Red Bull og Toro Rosso. Keppnisáætlunin virkaði vel. Ég er mjög ánægður með bílinn og hann hentar mér og ég treysti honum,“ sagði Romain Grosjean sem varð fimmti á Haas bílnum. Grosjean sagði að liðið væri að upplifa ameríska drauminn.

„Við vorum að reyna að hanga lengur á dekkjunum en aðrir þannig að  þetta leit ekki fallega út í byrjun. Þetta var góð endurheimt frá því í gær,“ sagði Daniil Kvyat sem ræsti 15. á Red Bull bílnum en endaði í sjöunda sæti.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt brautarkort sem sýnir öll helstu úrslit helgarinnar. 


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton náði ráspól í Bahrein

Lewis Hamilton var fljótastur undir flóðljósunum í tíamtökunni fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Bahrein á morgun. Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji.

Nico Rosberg vann í Bahrein

Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark í Formúlu 1 kappakstrinum í Bahrein. Kimi Raikkonen á Ferrari varð annar og Lewis Hamitlon varð þriðji á Mercedes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×