Guðmundur sáttur: Spiluðum mjög góða vörn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. apríl 2016 23:15 Guðmundur og lærisveinar hans eru komnir í góða stöðu eftir sigurinn á Króatíu í kvöld. vísir/getty
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska handboltalandsliðsins, hrósaði sínum mönnum eftir sigurinn mikilvæga á Króatíu í forkeppni Ólympíuleikanna í kvöld. „Við spiluðum mjög góða vörn og Niklas Landin varði mikilvæg skot í markinu,“ sagði Guðmundur eftir leikinn sem Danir unnu 28-24. Þeir eru með tvö stig í riðli 3, líkt og Norðmenn sem báru sigurorð af Barein fyrr í dag, 35-29. „Við fengum einnig mörg mörk úr hraðaupphlaupum, sérstaklega í fyrri hálfleik, þar sem þau voru fimm eða sex. Það eru alltaf mikilvæg mörk í leikjum gegn líkamlega sterkum andstæðingum.“ Guðmundur viðurkennir að honum hafi ekki litist á blikuna þegar Króatar breyttu stöðunni úr 23-17 í 23-22 í seinni hálfleik. „Þetta var erfiður kafli, þegar þeir náðu að minnka muninn í eitt mark. Þetta var ekki auðvelt en ég er mjög stoltur af því hvernig mínir menn höndluðu þær aðstæður,“ sagði Guðmundur sem er tilbúinn í leikinn gegn Noregi á morgun. „Það verður áskorun fyrir okkur að koma okkur aftur niður á jörðina. Við getum glaðst í klukkutíma til viðbótar en svo þurfum við að einbeita okkur að Noregi. Það er hættulegt lið með mikið sjálfstraust,“ bætti landsliðsþjálfarinn við.
Handbolti Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Liverpool - Manchester City | Fyrsti leikurinn eftir dóm City Enski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Fleiri fréttir Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Sjá meira