Innlent

Þungt haldinn eftir bílslys á Holtavörðuheiði

Heimir Már Pétursson skrifar
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tvítugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir bílslys á Holtavörðuheiði í nótt.

Þyrla Landhelgisgæslunnar lagði af stað frá Reykjavík um klukkan hálf sex í morgun til að sækja manninn og flytja hann á Landspítalann í Fossvogi.  Þyrlan lenti þar klukkan rúmlega sjö í morgun en frekai upplýsingar um slysið liggja ekki fyrir að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×