Bíó og sjónvarp

Bretinn sólginn í Ófærðarkönnur

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Bretar eru vitlausir í allt sem tengist Ófærð og nú er búið að hanna könnur og fleira til að svala þorstanum.
Bretar eru vitlausir í allt sem tengist Ófærð og nú er búið að hanna könnur og fleira til að svala þorstanum. Vísir/Samsett
Bretar virðast vera sólgnir í allt sem tengist spennuþáttunum Ófærð sem sýndir voru í Bretlandi undir nafninu Trapped. Þrátt fyrir að nokkuð sé síðan að lokaþátturinn var sýndur seljast ýmsar vörur merktar Trapped eins og heitar lummur.

Andri og Hinrika eða Ólafur Darri Ólafsson og Ilmur Kristjánsdóttir vöktu sérstakla lukku í Bretlandi og eru þau stjörnurnar á þessum vörum. Hægt er að kaupa könnur, veggmyndir, símahulstur, töskur og púða svo dæmi séu tekin og eru viðtökurnar afar góðar.

Kannan virðist vekja sérstaka lukku og fær hún fjórar stjörnur af fimm mögulegum og kaupendur sem skilja eftir umsagnir eru undantekningarlaust ánægðir með vöruna sem kostar 15 pund eða um 2.600 krónur.

 

Ófærðarpúðinn er einnig mjög vinsæll og er þorri þeirra 33 kaupenda sem skilja eftir umsagnir við hann mjög sáttur við púðann sem verður að teljast nokkuð glæsilegur. Þá vekur sundpokinn mikla ánægju og fær hann fimm stjörnur af fimm mögulegum.

Það er hönnuðurinn redscharlach sem selur vörurnar inn á síðunni Red Bubble en þær má skoða hér.

Nokkur umsagnir um vörurnar

Um könnuna:

  • Mug works as promised: holds liquid well and looks good with the print.
  • I ordered 4 different mugs for my adult kids. They have very different personalities so it's hard to find gifts they all like but the mugs did the trick. They all loved them! I highly recommend them!
  • The mug is exactly what I wanted and the quality of the print design is top notch! Love it
Um púðann

  • This pillow is great! It's exactly what I was expecting.
  • These are much better than I thought they would be....thought they might be shiny nylony looking but great quality and the photos look great on them.



Um sundpokann

  • I love the bag, it's a good size for storing text books and other things. The art looks great on it, it was well printed
  • Bag was exactly what I expected and more! Durable & superb illustration on it! Love it!

Tengdar fréttir

Augabrúnir Ilmar vekja athygli í Bretlandi

Síðasti þátturinn af hinni geysivinsælu sjónvarpsþáttaröð Ófærð verður sýndur á BBC 4 í Bretlandi um næstkomandi helgi. Enskt heiti Ófærðar er Trapped og hafa Bretar verið mjög duglegir við að tísta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×