Erlent

Kosningafundi Trump aflýst vegna mótmæla

Heimir Már Pétursson skrifar
Andstæðingar Trump fjölmenntu á fundarstaðinn löngu áður en fundurinn átti að hefjast.
Andstæðingar Trump fjölmenntu á fundarstaðinn löngu áður en fundurinn átti að hefjast. Vísir/EPA
Donald Trump, sem leiðir baráttuna fyrir útnefningu Repúblikana fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, neyddist til að aflýsa stórum kosningafundi í Chicago í Illinois í gærkvöldi vegna mótmæla andstæðinga hans á fundarstaðnum.

Andstæðingar Trump fjölmenntu á fundarstaðinn löngu áður en fundurinn átti að hefjast og kom til smávægilegra ryskinga milli þeirra og stuðningsmanna Trump, sem reyndu að taka mótmælaspjöld af andstæðingunum.

Þetta er í fyrsta sinn sem Trump þarf að aflýsa kosningafundi vegna mótmæla. Þúsundir andstæðinga Trump söfnuðust saman fyrir utan fundarstaðinn en þrátt fyrir öskursamkeppni milli fylkinga og smávægilegra pústra, slasaðist enginn og lögregla lét mótmælin að mestu afskiptalaus.

Demókratar njóta mikils fylgis í Chicago, sem einnig er heimaborg Barack Obama forseta.


Tengdar fréttir

Vill ekki tryggja Trump eða Cruz sigurinn

Michael Bloomberg, fyrrverandi borgarstjóri í New York, segist ekki geta hugsað sér að framboð sitt yrði til þess að koma Donald Trump eða Ted Cruz í forsetaembætti Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×