Hola í handleggnum eftir köngulóarbit Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. mars 2016 12:00 Samsett mynd/Twitter/Getty
James Gray, 23 ára sóknarmaður hjá enska utandeildarliðinu Wrexham, var frá æfingum í mánuð eftir slæmt köngulóarbit en hann er nú nýbyrjaður að æfa á nýjan leik. Gray var bitinn á hægri handlegg en velti því ekki frekar fyrir sér á sínum tíma. En eins og sést á meðfylgjandi mynd hafði bitið hrikalegar afleiðingar fyrir Gray sem þurfti að fara í aðgerð vegna þess. Falska ekkjan [e. false widow spider] er eitraðasta könguló Bretlandseyja en Grey segir að í fyrstu hafi bitið virst algjörlega meinlaust. „Ég pældi ekkert í þessu fyrr en nokkrum dögum síðar að ég fór til læknisins hjá félaginu,“ sagði Gray í viðtali við BBC. „Þetta varð svo verra og verra og ég held að læknirinn hafði þá áttað sig á því að sýkingin var byrjuð að dreifa sér upp allan handlegginn. Þá gerðu menn sér grein fyrir alvarleika málsins og var ég sendur í flýti upp á spítala.“ „Þeir skáru sýkinguna í burtu og þess vegna var ég með holu í handleggnum,“ bætti Grey við sem komst sem betur fer heill frá öllu saman. En liðsfélagarnir gerðu auðvitað góðlátlegt grín að kappanum. „Þeir hafa komið með nokkra brandara. Ég hef til dæmis verið kallaður köngulóarmaðurinn og fleira í þeim dúr.“
Enski boltinn Mest lesið Myndaveisla: Tilfinningarík stund þegar bikarinn fór á loft á Hlíðarenda Handbolti Grét í sturtunni og vissi að hann þyrfti að hætta aðeins þrítugur Fótbolti Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum Handbolti „Við áttum þetta skilið“ Handbolti Valur - FH 27-26 | Valur er Íslandsmeistari eftir sigur gegn FH í oddaleik Handbolti Valverde segist bara hafa rekið höfuðið í borð Fótbolti Shakira gefur út nýtt HM lag Fótbolti Gidsel getur mölbrotið markamet Hansen Handbolti Fokdýrir miðar á bardagakvöldið við Hvíta húsið Sport Glasner gæti kvatt Palace með titli en Rayo Vallecano stendur í veginum Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool hættir við verðhækkanir City varð Englandsmeistari heima í sófanum Sagður þjást en vill enga vorkunn Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Sjá meira