Innlent

Segja annmarka á dómi Héraðsdóms Reykjaness

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/GVA
Hæstiréttur ómerkti dóm yfir manni sem hafði verið sakfelldur fyrir að berja ólögráða son sinn. Töldu dómarar Hæstaréttar að Héraðsdómur Reykjaness hefði byggt mat á sönnunargildi framburða fyrir dómi á röngum staðreyndum. Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir að hafa dregið að sér fjórhjól sem móðir hans var með á kaupleigu.

Málinu er því vísað aftur í hérað og allur áfrýjunarkostnaður greiðist úr ríkissjóði.

Nánar tiltekið hafði maðurinn verið sakfelldur fyrir líkamsárás og brot á barnaverndarlögum, fjárdrátt og nytjastuld. Hann játaði síðari brotin fyrir héraðsdómi en fór þó fram á sýknu fyrir Hæstarétti.

Þann 18. desember 2013 á maðurinn að hafa slegið ólögráða son sinn með krepptum hnefa í andlitið og veitt honum nokkur högg í höfuðið. Þannig á hann að hafa misþyrmt syninum bæði andlega og líkamlega.

Sonurinn og systir hans báru vitni gegn manninum. Þá þótti frásögn sambýliskonu mannsins við dóttir hans styðja frásögn systkinanna.

Hæstiréttur segir hins vegar að í forsendum málsins séu dregnar rangar ályktanir. Annmarkar á dómnum séu slíkir að ekki verði hjá því komist að ómerkja hann.

Dóm Hæstaréttar og Héraðsdóms Reykjaness má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×