Innlent

Átta ára drengur fótbrotnaði á Sundlaugarvegi

Atli Ísleifsson skrifar
Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og dvelur nú á Barnaspítala Hringsins.
Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og dvelur nú á Barnaspítala Hringsins. Vísir/Vilhelm
Átta ára drengur fótbrotnaði þegar bíl var ekið utan í hann á Sundlaugarvegi við umferðarljósin við Pylsuvagninn í Laugardal klukkan rúmlega 17 í gærdag.

Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og dvelur nú á Barnaspítala Hringsins.

Faðir drengsins segir í samtali við Vísi að hann hafi farið utan í bílinn og dekkið hafi farið yfir vinstri sköflunginn á honum. Hann segir drenginn þó sprækan og hljóðið gott í honum að öðru leyti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×