Kostar rúma 13 milljarða að útrýma einbreiðum brúm á þjóðvegi 1 Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. febrúar 2016 19:26 Vigdís Hauksdóttir spurði innanríkisráðherra út í einbreiðar brýr á þjóðvegi 1. vísir/pjetur/vilhelm
Áætlaður kostnaður við að útrýma einbreiðum brúm á þjóðvegi 1 er 13,2 milljarðar króna, samkvæmt svari Ólafar Nordal innanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, um einbreiðar brýr. Í svarinu kemur jafnframt að alls séu 39 einbreiðar brýr á hringveginum en þær eru aðeins í tveimur kjördæmum, það er í Suðurkjördæmi og Norðausturkjördæmi. Í Suðurkjördæmi eru þær 26 talsins en en í Norðausturkjördæmi eru þær 13 en meðalaldur brúanna er 50 ár. Í fyrra spurði Haraldur Einarsson, flokksbróðir Vigdísar, innanríkisráðherra einnig út í einbreiðar brýr en fyrirspurnin sneri að brúm þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Í svari ráðherra við fyrirspurninni kom fram að 694 einbreiðar brýr væru á þjóðvegum landsins og af þeim væru 197 á vegum þar sem hámarkshraðinn væri 90 kílómetrar. Haraldur spurði líkt og Vigdís um hvernig skipting brúnna væri eftir kjördæmum en samkvæmt svarinu eru flest í Suðurkjördæmi, eða 73. Í Norðvesturkjördæmi voru þær 61, í Norðausturkjördæmi 57 og í Suðurvesturkjördæmi sex. Áætlaður kostnaður við að tvöfalda allar 197 brýrnar var metinn 30 milljarðar króna þá.
Tengdar fréttir Vigdís vill vita hvað einbreiðu brýrnar á hringveginum eru margar Í brúarsrká Vegagerðarinnar kemur fram að 41 einbreið brú sé á hringveginum sem samtals eru 3820 metrar að lengd. 28. janúar 2016 10:53 Vill vita í hvaða kjördæmum einbreiðu brýrnar eru Haraldur Einarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vill svör frá innanríkisráðherra um staðsetningar einbreiðra brúa á Íslandi. 3. febrúar 2015 21:00 30 milljarða þyrfti til að breikka einbreiðar brýr með 90 kílómetra hámarkshraða Ólöf Nordal segir í svari til Haraldar Einarssonar að 197 einbreiðar brýr með 90 kílómetra hámarkshraða séu í landinu. 27. febrúar 2015 14:53 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Stuðningur allt of lítill Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Sjá meira
Vigdís vill vita hvað einbreiðu brýrnar á hringveginum eru margar Í brúarsrká Vegagerðarinnar kemur fram að 41 einbreið brú sé á hringveginum sem samtals eru 3820 metrar að lengd. 28. janúar 2016 10:53
Vill vita í hvaða kjördæmum einbreiðu brýrnar eru Haraldur Einarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vill svör frá innanríkisráðherra um staðsetningar einbreiðra brúa á Íslandi. 3. febrúar 2015 21:00
30 milljarða þyrfti til að breikka einbreiðar brýr með 90 kílómetra hámarkshraða Ólöf Nordal segir í svari til Haraldar Einarssonar að 197 einbreiðar brýr með 90 kílómetra hámarkshraða séu í landinu. 27. febrúar 2015 14:53