Gæluverkefni fortíðar kostar 3-4 Landspítala Skjóðan skrifar 24. febrúar 2016 09:00
Landbúnaðarráðherra og fulltrúi bænda eru búnir að skrifa undir búvörusamning til tíu ára. Það er því ekki fyrr en á fjórða kjörtímabili héðan í frá sem hann fellur úr gildi. Samningurinn felur í sér hækkun á beinum greiðslum til bænda sem nema næstum 14 milljörðum á ári til að byrja með en heildargreiðslur á tíu árum eiga að nema 132 milljörðum. Þetta slagar hátt í tvo Landspítala og er þá ekki tekið tillit til verndartolla og innflutningshindrana á landbúnaðarvörum, sem metnar eru á sama. Það fara með öðrum orðum á næstu tíu árum ígildi þriggja til fjögurra Landspítala í að viðhalda úreltu landbúnaðarkerfi, sem viðheldur fátækt meðal bænda og tryggir að Íslendingar greiða eitthvert hæsta matarverð í heimi. Enginn fulltrúi neytenda, verslunarinnar, verkalýðshreyfingarinnar eða annarra matvælaframleiðenda fékk sæti við borðið. Þar sátu aðeins ráðherrann og fulltrúi bænda. Eitt stykki Icesave. Starfslaun handa rúmlega þrjú þúsund listamönnum í tólf mánuði á hverju ári næstu tíu árin. Hvað er það milli vina? Og þarna voru svo sannarlega vinir að útdeila fjármunum úr sameiginlegum sjóðum þjóðarinnar. Báðir núverandi stjórnarflokkar eru þekktir fyrir sérstaka hagsmunavörslu fyrir landbúnaðarkerfið á kostnað neytenda. Sjálfstæðisflokkurinn vildi einhvern tíma láta sem hann væri flokkur frjáls framtaks og neytenda en það er löngu liðin tíð. Nú eru tveir af þremur turnum í stefnu flokksins varðstaða um niðurgreiddan aðgang örfárra að þjóðarauðlindum og ölmusukerfi fyrir bændur á kostnað neytenda. Þriðji turninn er að tryggja mikilsverða hagsmuni fyrir helstu bakhjarla flokksins aðra en útgerðarmenn og bændur. Ekki var nóg með að 132 milljarða útgjöld ríkisins væru ákveðin því sem næst með tveggja manna tali ráðherra og fulltrúa bænda heldur ríkti fullkomin leynd yfir innihaldi samningsins þar til búið var að skrifa undir hann. Er það svo sem í takti við annað hjá þessari ríkisstjórn og fyrirtækjum í eigu ríkisins. Reynt hefur verið að færa þau rök fyrir samningnum að honum sé ætlað að spara gjaldeyri og tryggja matvælaöryggi. Þessi rök eru fáránleg. Matvælaframleiðsla í landbúnaði reiðir sig á innflutt fóður, áburð, eldsneyti, tæki og fleira sem kostar meiri gjaldeyri en innfluttar landbúnaðarafurðir. Ef aðföng til landsins bresta brestur íslenskur landbúnaður líka. Forsætisráðherra segir málið frá þar sem búið sé að skrifa undir samninginn. Fyrst þarf Alþingi þó að leggja blessun sína yfir hann því fjárveitingavaldið er í höndum þess. Nú verður fylgst vel með því hvernig fulltrúar þjóðarinnar greiða atkvæði. Í landinu munu vera innan við þrjú þúsund bændur en neytendur eru rúmlega 330 þúsund.Skjóðan skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum. Hún er frekju- og leiðindaskjóða, sem lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
Skjóðan Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira