Upplýsinga beðið úr svörtu kössunum Guðsteinn Bjarnason skrifar 10. febrúar 2016 06:00 Hrikaleg aðkoma var á slysstað í Bæjaralandi í gærmorgun þar sem tvær lestir rákust framan á hvor aðra á fullri ferð. Þá var óhægt um vik fyrir björgunarlið því enginn vegur liggur á staðinn. Lán var þó í óláni að færri börn voru um borð en alla jafna út af vetrarfrídögum vegna yfirstandandi kjötkveðjuhátíðar. Visir/EPA
Þýskaland Að minnsta kosti tíu manns létu lífið og sautján slösuðust alvarlega þegar tvær járnbrautarlestir rákust á í Þýskalandi í gærmorgun. Tölurnar miða við stöðuna síðdegis í gær. Sextíu og þrír hlutu minni meiðsli. Þetta er eitt versta lestarslys í sögu Þýskalands. Orsakir árekstursins voru enn óljósar í gær, en beðið var upplýsinga úr svörtu kössunum svokölluðu úr báðum lestunum. Í hvorri lest eru þrír kassar með búnaði sem skráir allar upplýsingar um ferðir lestanna. Síðdegis í gær var búið að finna tvo kassanna. Áreksturinn varð skammt frá bænum Bad Aibling í Bæjaralandi, ekki langt suðaustur af München, á kafla þar sem lestarteinarnir eru einfaldir þannig að ekki er hægt að mætast. Engin skýring hafði í gær fengist á því hvers vegna báðar lestirnar voru þar á ferðinni á móti hvor annarri. Þær virtust hafa lent saman á fullri ferð, án þess að reynt hafi verið að hægja á, því fremsti vagn annarrar lestarinnar klauf hliðina af fremsta vagni hinnar lestarinnar. Lestarstjórarnir hafi því varla haft nokkra vitneskju um að önnur lest væri að nálgast.Joachim Hermann innanríkisráðherra landstjórnarinnar í BæjaralandiEf báðar lestirnar hefðu verið á áætlun, á leiðinni milli Kolbermoor og Rosenheim, þá hefði önnur verið komin af einföldu brautarleiðinni áður en hin færi inn á hana. „Nú þarf að rannsaka af hverju vikið var frá áætluninni,“ höfðu þýskir fjölmiðlar í gær eftir Joachim Hermann, innanríkisráðherra landstjórnarinnar í Bæjaralandi. Ekki var vitað nákvæmlega á hvaða hraða lestunum var ekið, en hámarkshraði á þessum stað er 100 kílómetrar á klukkustund, en þarna er lestunum ekið um skóglendi þar sem útsýni fram eftir teinunum er lítið. Í Bæjaralandi eru þessa dagana vetrarfrídagar vegna kjötkveðjuhátíðar, sem varð til þess að óvenju fá skólabörn voru á ferðinni með lestunum. Björgunarfólk var komið að slysstaðnum innan fárra mínútna eftir að slysið varð, en erfitt var að komast að slysstaðnum þar sem teinarnir lágu þar á milli skóglendis og árinnar Mangfall, sem rennur fram hjá Bad Aibling til bæjarins Rosenheim, sem er þar skammt frá. Um fimm hundruð manna björgunarlið var á staðnum, en notast þurfti við þyrlur til að ná látnum og slösuðum af slysstaðnum vegna þess að þangað liggur enginn akvegur.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Sjá meira