Fékk ekki að taka ungabarn með sér í setustofu Icelandair því hann mátti ekki taka með sér gest Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 10. febrúar 2016 15:11 Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir skilmála þeirra korta sem veita aðgang að Saga Lounge skýra. vísir/anton brink
Farþegi sem fór í flug með Icelandair á dögunum og var á ferðalagi með fjögurra mánaða gamalli dóttur sinni fékk ekki að taka hana með sér inn í setustofu Icelandair á Keflavíkurflugvelli, svokallað Saga Lounge. Kom þetta farþeganum nokkuð á óvart en hann er handhafi American Express-kreditkorts sem veitir aðgang að setustofunni en handhafar kortsins mega hins vegar ekki taka með sér gest í Saga Lounge. Því mátti farþeginn ekki taka dóttur sína með sér inn. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir skilmála þeirra korta sem veita aðgang að Saga Lounge skýra. „Reynslan er sú að það er afar erfitt að draga aðra línu en þá að „gestur“ eigi við alla einstaklinga aðra en handhafa. Það er erfitt, svo dæmi sé tekið, að heimila einum með þetta kort að taka 3 mánaða barn með, en banna öðrum að taka með eins árs gamalt barn, eða fimm ára barn, og svo framvegis. Þess vegna er þessu framfylgt svona,“ segir Guðjón og bætir við að önnur kort, til dæmis gull-og silfurkort Icelandair, heimili handhafa að taka með sér gesti. Þá gildi einu hvort um barn eða fullorðinn einstakling er að ræða. Auk þess fá börn sem ferðast á Saga Class eða Comfort aðgang að setustofunni líkt og aðrir sem ferðast á þeim farrýmum. Í setustofunni er þeim sem hafa aðgang boðið upp á drykki og léttar veitingar þeim að kostnaðarlausu.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira