Hvert heimili verði með viðlagakassa Sæunn Gísladóttir skrifar 13. febrúar 2016 07:00 Hjálmar Karlsson, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, segist vonast til þess að hvert heimili landsins verði búið viðlagakassa og heimilisáætlun. vísir/gva
Það er von Rauða krossins að viðlagakassa með nauðsynjum til þriggja daga og heimilisáætlun muni finnast á hverju heimili landsins eftir að nýju verkefni þeirra 3 dagar hefur verið hrint af stað. Um er að ræða forvarnarverkefni þar sem landsmenn eru hvattir til þess að koma sér upp viðlagakassa, með öllum þeim nauðsynjum sem þeir þurfa ef innviði rofna, svo sem mat með löngu geymsluþoli, vatni á flöskum eða í brúsa, og vasaljósi, auk heimilisáætlunar til að fyrirbyggja tjón. Land Rover verksmiðjan í Bretlandi styrkir Rauða krossinn í verkefninu með aðkomu BL á Íslandi. „Þetta er okkar skylda hjá Rauða krossinum, við sinnum neyðarvörnum og erum með fjölda hjálparstöðva og sjálfboðaliða. Það sem hefur setið eftir síðustu ár með eflingu viðbragðsaðila vegna neyðartilvika er almenningsfræðsla. Hvernig eigi að bregðast við ef rof verður á innviðum, ef til dæmis verður rafmagnslaust, eða sambandlaust og/eða vatnsskortur vegna náttúruhamfara. Þess vegna fórum við af stað með þetta,“ segir Hjálmar Karlsson, verkefnastjóri hjá Rauða Krossinum. „Náttúruhamfarir gera ekki boð á undan sér og veðrabrigði eru mikil á Íslandi. Þannig að það er þá betra að vera undirbúinn og tilbúinn með einhvers konar heimilisáætlun og viðlagakassa. Það er lítið hægt að gera eftir að hamfarirnar skella á,“ segir Hjálmar. Rauði krossinn verður með fræðslu á tuttugu og fimm stöðum á næstu þremur árum til að kynna verkefnið. „Að sama skapi ætlum við að heimsækja alla grunnskóla á landinu og fá börnin í lið með okkur. Þau munu þá fá fjölskyldur sínar með sér í þetta,“ segir Hjálmar. „Það er okkar von að það verði viðlagakassar á hverju heimili landsins eftir þetta. Þetta eru hlutir sem oft eru til nú þegar, það ætti ekki að vera sligandi kostnaður við að koma sér þessu upp. Það eru mörg dæmi um að innviðir séu rofnir á Íslandi. Þetta dregur úr því að viðbragðsaðilar, eins og björgunarsveitir, þurfi að fara í minni keyrslur aftur og aftur til þess að sinna einhverju sem hefði verið hægt að fyrirbyggja.“
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Sjá meira