Kettir sem fundust í iðnaðarhúsnæði fá nær allir nýtt heimili Bjarki Ármannsson skrifar 15. febrúar 2016 16:38 Frá ættleiðingardegi Dýrahjálpar á Korputorgi í gær. Vísir/Ernir
Nær allir þeirra rúmlega þrjátíu katta sem komið var fyrir hjá Dýrahjálp eftir að þeim var bjargað úr iðnaðarhúsnæði í október verða komnir á nýtt heimili í næsta mánuði. Ættleiðingardagur Dýrahjálpar sem haldinn var í gær gekk vonum framar. Kettirnir sem boðnir voru til ættleiðingar í gær fundust við aðstæður þar sem umönnun og þrifnaði var verulega ábótavant og var umráðamaður húsnæðisins handtekinn. Alls fundust fimmtíu kettir í iðnaðarhúsnæðinu, þar af var 31 komið fyrir hjá Dýrahjálp. Helena Rafnsdóttir hefur haldið utan um mál kattanna hjá Dýrahjálp. Hún hefur verið að hringja út frá því klukkan níu í morgun í þá sem óskuðu eftir því að ættleiða þessa ketti. Enn er verið að reyna að ná í fólk en útlit er fyrir að aðeins um fjórir til sex af þessum 31 ketti verði ekki kominn með nýtt heimili á næstu dögum. „Þetta þykir bara rosa gott,“ segir Helena. „Það voru auðvitað margir sem vildu sömu kisuna, en sem betur fer var hægt að snúa mörgum og fá þá til að skoða aðrar. Það geta ekki allir fengið sömu kisurnar.“ Enginn kattanna er kominn á heimili enn sem komið er, það á eftir að bólusetja þá og að því loknu tekur við ákveðinn biðtími. Helena segir þó að óbreyttu að nær allir verði komnir á heimili í mars. Hún tekur jafnframt skýrt fram að þeir kettir sem ekki fengu heimili verði áfram í umsjá Dýrahjálpar. „Þó að kisurnar séu lengur hjá okkur, þá lógar Dýrahjálp aldrei dýrum,“ segir hún. „Við leggjum allt í að lækna þau ef þau eru mjög veik. Þannig að það þarf enginn að hafa áhyggjur.“
Mest lesið Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: „Þorgerður er afar indæl“ Innlent Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Innlent Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Innlent Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Erlent Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Erlent Halldór Blöndal borinn til grafar Innlent Stoltastur af veiðigjaldinu og telur aðrar skattabreytingar hafa lítil áhrif á heimilin Innlent Fleiri fréttir Sjómenn mótmæla breytingum um samsköttun hjóna 70 prósent landsmanna hlynnt banni Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: „Þorgerður er afar indæl“ Tvö handtekin fyrir þjófnað og þrír fyrir sölu og dreifingu Stoltastur af veiðigjaldinu og telur aðrar skattabreytingar hafa lítil áhrif á heimilin Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Fylgi stjórnarflokkanna dalar Föðurnum í Suður-Afríku enn haldið sofandi Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum Sjá meira