Innflutningur að nálgast metárið 2007 Svavar Hávarðsson skrifar 16. febrúar 2016 07:00 Heildarinnflutningur um Faxaflóahafnir var 2,4 milljónir tonna. vísir/gva
Töluverð aukning var í flutningum um hafnarsvæði Faxaflóahafna á síðasta ári, og aðallega vegna aukins innflutnings. Aðeins árið 2007 sýnir meiri flutninga í gegnum hafnarsvæði félagsins. Þetta sýna bráðabirgðatölur um flutninga, en í heildina varð tæplega fjögurra prósenta aukning á flutningum. Innflutningur jókst um 8,3 prósent en útflutningur dróst saman um tæp fjögur prósent og vega þar þyngst vörur frá stóriðju. Heildarflutningar voru um 3,8 milljónir tonna, þar af almennur innflutningur 3,4 milljónir tonna; útflutningur var 842 þúsund tonn. Af einstökum tegundum innflutnings má sjá að innflutningur á bifreiðum, byggingavörum og eldsneyti jókst merkjanlega. Þegar bifreiðainnflutningur er skoðaður sérstaklega voru í fyrra fluttir inn 31.470 bílar, en fæstir urðu þeir árið 2009 eða 3.580. Árið 2005 voru þeir 41.660. Tæp 90.000 tonn voru flutt inn af byggingarvörum en 67.800 tonn árið 2009. Árið 2007 voru flutt inn 196.809 tonn af byggingarvörum. Eins og fréttir hafa ítrekað sýnt fram á þá þarf að hafa fjölgun ferðamanna á Íslandi á tímabilinu í huga. Árið 2014 keyptu bílaleigur einn af hverjum fjórum nýjum bílum. Árin 2007 til 2011 voru erlendir gestir í kringum 500.000 en þeir munu hafa verið um 1,3 milljónir í fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira