Landsvirkjun þrýsti á um breytingar á reglum Snærós Sindradóttir skrifar 17. febrúar 2016 07:00 Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, fóru á fund umhverfisráðherra þann 17. ágúst síðastliðinn og afhentu bréf þess efnis að Landsvirkjun gerði verulegar athugasemdir við starfsreglurnar. Vísir/Vilhelm
Landsvirkjun fór fram á það við umhverfisráðuneytið að starfsreglum verkefnastjórnar rammaáætlunar yrði breytt. Samkvæmt drögum að nýjum reglum verður verkefnastjórnin að taka aftur til umræðu virkjunarkost sem áður hefur verið settur í vernd ef hann hefur tekið breytingum. Taki breytingarnar gildi mætti leggja fram að nýju alla virkjanakosti sem áður hafa verið settir í verndarflokk lítillega breytta – til dæmis Norðlingaölduveitu. Formaður Landverndar, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, sagði í grein í Fréttablaðinu í gær: „Verði drögin að veruleika hefur Landsvirkjun í raun mótað leikreglur verkefnisstjórnar í úrvinnslu mála sem varða beina fjárhagslega hagsmuni fyrirtækisins.“Sigrún Magnúsdóttir umhverfis-og auðlindaráðherraSigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra sagði í samtali við RÚV á sunnudag að það væri fráleitt að halda því fram að fyrirhugaðar breytingar væru gerðar fyrir Landsvirkjun. „Það var ekki síst út af fjölmörgum ábendingum, meðal annars frá Alþingi Íslendinga, sem að við hófum endurskoðun á starfsreglunum nú,“ sagði Sigrún. Samkvæmt svari umhverfisráðuneytisins til Landverndar vísaði Sigrún þar til funda atvinnuveganefndar Alþingis þann 24. september síðastliðinn. Fram kom í svarinu að bæði gestir fundarins og þingmenn hefðu gert athugasemdir við starfsreglurnar. Vert er að taka það fram að Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, var gestur á fundinum. „Þetta vekur allt saman grunsemdir um að það séu sterkir aðilar í orkugeiranum að þrýsta á ráðuneyti umhverfismála og náttúruverndar að breyta reglum í þágu nýtingar,“ segir Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra og þingmaður VG.Svandís SvavarsdóttirSvandís hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til umhverfisráðherra, þar sem farið er fram á að öll gögn um feril málsins verði opinberuð og því svarað hvort athugað hafi verið hvort breytingin standist lög. „Það væri saga til næsta bæjar að nefnd sem starfar samkvæmt lögum sé sett í þá stöðu á miðju tímabili sinnar vinnu að breyta sínum starfsaðferðum efnislega í þágu einstaka sjónarmiða og markmiða,“ segir Svandís. „Þá erum við farin að hverfa frá því að vinnan sé fagleg og í samráði við lögin, enda hef ég efasemdir um að það standist lögin að breyta reglum efnislega á miðju tímabili.“
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Sjá meira