Haukakonur fá til sín stigahæsta leikmann deildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2016 17:07 Chelsie Alexa Schweers skoraði 32,5 stig að meðaltali í leikjunum á móti Haukum fyrir áramót. Vísir/Anton
Kvennalið Hauka klárar ekki tímabilið án bandarísk leikmanns því Chelsie Alexa Schweers, fyrrum leikmaður Stjörnunnar, hefur fengið leikheimild hjá Haukum. Þetta kemur fram á heimasíðu Körfuknattleiksambands Íslands. Nýliðar Stjörnunnar létu Chelsie Alexa Schweers fara á dögunum þrátt hún væri að skora 31,0 stig að meðaltali í leik og væri stigahæsti leikmaður Domino´s deildar kvenna. Það kom mörgum á óvart að Stjarnan léti Schweers fara en hún hafði verið meidd á hendi og missti af leikjum vegna þess. Haukarnir voru hinsvegar fljótir að semja við hana enda er hún frábær leikmaður sem hefur sannað sig í íslensku deildinni. Chelsie Alexa Schweers var einnig með 7,7 fráköst og 5,3 stoðsendingar í leik en hún næstbesta þriggja stiga skyttan í deildinni með 39 prósent nýtingu í þriggja stiga skotum. Haukaliðið verður ekki árennilegt í framhaldinu en nú með tvo af þremur framlagshæstu leikmönnum deildarinnar innanborðs. Fyrir er Helena Sverrisdóttir sem í öðru sæti yfir hæsta framlagið í deildinni en Schweers er þar í þriðja sætinu. Haukar eru í efsta sæti deildarinnar og hafa aðeins tapað einum leik á öllu tímabilinu. Það er ekki hægt að sjá að Haukakonur tapi fleiri leikjum í vetur nú þegar Schweers er kominn við hlið þeirra Helenu Sverrisdóttur og Pálínu Gunnlaugsdóttur. Haukaliðið ætti að geta boðið upp á þriggja stiga skotnýtingu í leikjum sínum en í liðinu eru nú fjórar af sex bestu þriggja stiga skyttum Domino´s-deildar kvenna.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Fleiri fréttir Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Sjá meira