Vilja afslátt af námslánum til Vestfirðinga Sveinn Arnarsson skrifar 15. september 2016 06:30 Frá Patreksfirði. vísir/pjetur
Lagt er til að námslán íbúa á Vestfjörðum verði lækkuð með afsláttum og íbúar svæðisins fari í lægra skattþrep, fyrirtæki fái lægra tryggingargjald en önnur og að tvenn jarðgöng verði skoðuð, Dýrafjarðargöng og Álftafjarðargöng í Ísafjarðardjúpi, samkvæmt nefnd um samfélags og atvinnuþróun á Vestfjörðum sem Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra skipaði þann 21. júní síðastliðinn.Pétur Georg Markan, formaður fjórðungssambands VesfjarðaNefndinni var ætlað að vinna aðgerðaáætlun fyrir Vestfirði í ljósi neikvæðrar byggðaþróunar í landshlutanum síðustu áratugi. Í niðurstöðum nefndarinnar kemur meðal annars fram að störf í stoðkerfi fiskeldis verði staðsett á Vestfjörðum og landshlutinn gerður að miðstöð fiskeldis. Þannig yrðu störf frá Matís, Fiskistofu og Hafrannsóknastofnun og önnur rannsóknatengd starfsemi fiskeldis færð á Vestfirði. Pétur Georg Markan, formaður Fjórðungssambands Vestfjarða, segir vinnuna hafa verið til fyrirmyndar. „Heildarhagsmunir svæðisins voru hafðir að leiðarljósi, sem grundvallar góða niðurstöðu nefndarinnar,“ segir Pétur. „Það þarf tvennt að koma til svo góður viðsnúningur náist. Hið opinbera þarf að koma af meira afli í innviðauppbyggingu á svæðinu og skoða þarf hvort ekki sé hægt að vinna betur saman, til aukinnar hagræðingar, sem myndi skila sér í betri þjónustu og meiri lífsgæðum fyrir íbúa.“ Lagt er til að afsláttur verði gefinn af námslánum og þeir sem setjast að á Vestfjörðum eftir nám njóti lægra skattþreps. Einnig að tryggingargjald verði lækkað hjá fyrirtækjum á svæðinu. Lagt er til að settur verði á fót starfshópur ráðuneyta og Byggðastofnunar til að vinna að útfærslum í málinu. Þá er lagt til að gera svæðisbundna samgönguáætlun með það að markmiði að samgöngur verði í sama horfi og annars staðar á landinu á næstu átta árum. Ásthildur Sturludóttir, sveitarstjóri Vesturbyggðar, segir skýrsluna ágæta en meira þurfi til. „Þessi vinna er gott skref í rétta átt en mun ekki valda grundvallarbreytingu í búsetuskilyrðum á Vestfjörðum. Til þess að svo megi verða þarf að koma með mun meira fjármagn og hafa uppi mun stærri áform,“ segir Ásthildur. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fleiri fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Sjá meira