Borgarstjóri vill virkja lífeyrisþega til hlutastarfa á leikskólum Heimir Már Pétursson skrifar 15. september 2016 19:15
Grunn- og leikskólum Reykjavíkur verður ekki gert að færa tap frá síðasta ári yfir á þetta ár og framlög til skólanna verður aukið um hundruð milljóna á þessu ári, samkvæmt aðgerðaáætlun borgarinnar. Borgarstjóri vill kanna að fá eldri borgara til kennslu í leikskólum til að vinna á mikilli manneklu. Sex hundruð og sjötíu milljóna hagræðingarkrafa var sett á skóla- og tómstundasvið Reykjavíkurborgar á þessu ári. En nú hefur Reykjavíkurborg ákveðið að setja 920 milljónir króna í þennan málaflokk, sem er hluti af tíu liða aðgerðaáætlun borgarinnar í skólamálum. Borgarstjóri og aðrir fulltrúar meirihlutans í borgarstjórn kynntu áætlunina í dag. Meðal annars á að setja 679 milljónir króna í að fjármagna sérkennslu, langtímaveikindi starfsmanna og skólaakstur strax á þessu hausti. Framlög til kaupa á námsgögnum hækka sömuleiðis í haust úr 1,8 milljarði króna í þrjá milljarða og 425 milljónir fara til að fjármagna inntöku barna sem fæddust í mars og apríl á síðasta ári inn í leikskólana um næstu áramót. Fæðisgjald nemenda í leik og grunnskólum verður hækkað um 100 krónur í október sem fara beint í hráefniskaup en bæta á gæði máltíða í skólunum sem kvartað hefur verið undan. „Í stuttu máli erum við að snúa vörn í sókn í skólamálum. Viljum með þessu tryggja skólunum okkar svigrúm til að vera áfram leiðandi sem góðar faglegar stofnanir sem búa börnin okkar vel undir framtíðina,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Ekki hefði verið hægt að ráðast í þessar aðgerðir nema vegna þess að aðhaldsaðgerðir borgarinnar hafi skilað árangri og auknar tekjur væru að valda viðsnúningi í rekstri borgarinnar. Dagur segir unnið gegn manneklu í leikskólunum í samráði við félög leikskólakennara og foreldra. Þá hafi verið nefndur sá möguleiki að þeir sem komnir eru á eftirlaunaaldur en hafi unnið á leikskólum kæmu til hlutastarfa án þess að það drægist frá eftirlaunum. „Þarna þarf kannski lagabreytingu. En ég held að allt samfélagið sé komið á þann stað varðandi eftirspurn eftir vinnuafli að við höfum ekki efni á að ýta einhverjum svona hugmyndum út af borðinu. Ég held að við eigum að taka öllum hugmyndum fagnandi. En kjarni málsins er að tryggja gott og hæft starfsfólk inn á leikskólana og draga fram hvað þeir eru mikilvægir og góðir vinnustaðir,“ segir borgarstjóri. Skúli Helgason formaður skóla- og tómstundasviðs segir aðgerðirnar sem kynntar voru í dag koma til móts við faglegar kröfur í skólakerfinu, til að mynda varðandi börn með sérþarfir. Þá muni miklu að skólunum verði ekki gert að færa tap frá fyrra ári yfir á þetta ár. Hins vegar fái sveitarfélögin ekki viðunandi fjármagn frá ríkinu til að standa undir lögbundnum skyldum vegna skóla og málefna fatlaðra. „Það eru margir milljarðar sem sveitarfélögin telja með réttu að þau ættu að fá í viðbót frá ríkinu. Til að fjármagna ýmsa þjónustu sem sveitarfélögin hafa tekið yfir. Nú eða þá bætur fyrir til dæmis aðgerðir eins og skattleysi séreignarsparnaðar sem hafa snuðað sveitarfélögin um eina fimmtán milljarða,“ segir Skúli.
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Fundað í flugvirkjadeilu Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Fleiri fréttir Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Sjá meira