Maður sem kærði lögreglumenn fyrir líkamsárás dæmdur í Hæstarétti til að greiða þeim miskabætur Birgir Olgeirsson skrifar 15. september 2016 15:58 Lögreglumennirnir vopnuðust Glock-skammbyssum sem voru sýnilegar í hulstrum á lærum þeirra. Vísir
Hæstiréttur hefur dæmt karlmann á fertugsaldri til að greiða tveimur lögreglumönnum miskabætur fyrir að ógna þeim með hnífi. Með þessu hefur Hæstiréttur staðfest dóm Héraðsdóms Vestfjarða í sama máli sem átti sér stað aðfaranótt mánudagsins 17. nóvember árið 2014 á Ísafirði og vakti töluverða athygli en lögregla greip til skotvopna eftir að tilkynning hafði borist um mann sem hafði hótað að skaða sjálfan sig. Maðurinn hafði kært lögreglumennina tvo fyrir húsbrot og líkamsárás en embætti ríkissaksóknara felldi niður málið í maí í fyrra þar sem viðbrögð lögreglumannanna voru ekki talin úr hófi harkaleg.Sjá einnig: Mál fellt niður gegn lögreglumönnum sem voru sakaðir um húsbrot og líkamsárás Lögreglumennirnir beittu piparúða í tvígang á andlit mannsins og slógu hann með kylfu í höndina með þeim afleiðingum að hann slasaðist illa. Þurfti hann að undirgangast skurðaðgerð í Reykjavík vegna áverkana þar sem sett var málmplata, sex skrúfur og tveir pinnar í handlegg og fingur hans. Eftir að embætti ríkissaksóknara hafði fellt niður málið gegn lögreglumönnunum tveimur var maðurinn hins vegar ákærður fyrir að ógna þeim og hóta með hnífi. Dómur gekk í málinu í Héraðsdómi Vestfjarða í janúar síðastliðnum þar sem maðurinn var dæmdur til að greiða lögreglumönnunum tveimur samtals 300 þúsund krónur í miskabætur. Dæmdi Hæstiréttur í dag að sá dómur stæði óraskaður.Var í sjálfsvígshugleiðingum Maðurinn hafði haft samband við félaga sinn á umrædda nótt í gegnum smáskilaboð þar sem hann sagðist vera í sjálfsvígshugleiðingum. Vinur hans hafði samband við lögreglu og fóru tveir lögreglumenn að heimili mannsins. Í skýrslu lögreglu er hann sagður hafa opnað dyrnar til hálfs og sögðust lögreglumennirnir hafa séð að hann var blóðugur á báðum upphandleggjum og hélt á hnífi vinstri hendi, með fimm sentímetra löngu blaði, sem hann var sagður hafa reynt að leyna fyrir aftan bak. Sögðust lögreglumennirnir hafa beðið manninn um að leggja frá sér hnífinn og boðið honum aðstoð vegna áverkanna. Í skýrslu lögreglunnar kom fram að maðurinn æstist upp við afskipti lögreglunnar og hann hafi reynt að loka dyrunum en annar lögreglumannanna hafi náð að setja fót milli stafs og hurðar. Tóku lögreglumennirnir upp piparúða og kylfur og skoruðu á manninn að leggja frá sér hnífinn, annars yrði hann beittur valdi.Sögðu manninn hafa hótað að stinga þá í andlitið Lögreglumennirnir sögðu manninn hafa ítrekað hótað því að stinga lögreglumennina og meðal annars í andlitið. Maðurinn neitaði þeim ásökunum en sagðist hafa afþakkað aðstoð lögreglumannanna. Í skýrslu lögreglu kemur fram að lögreglumennirnir hefðu sprautað piparúða í andlit mannsins. Þetta var endurtekið og er maðurinn þá sagður hafa sveiflað hnífnum. Sögðust lögreglumennirnir hafa beitt fyrir sig kylfum til að verjast manninum. Svo fór að maðurinn fór aftur inn í húsið og lokaði dyrunum.Vopnuðust Glock-skammbyssum Kölluðu lögreglumennirnir eftir liðsauka auk þess sem ákvörðun var tekin um að vopnast Glock-skammbyssum sem voru vel sýnilegar í hulstrum á lærum lögreglumanna. Annar maður var í umræddu húsi þegar þetta átti sér stað og er sagður í lögregluskýrslu hafa komið út úr húsinu og afhent lögreglu hníf mannsins. Þá kom einnig vinur mannsins, sem hafði gert lögreglu viðvart, og rætt við manninn í gegnum síma sem kom út úr húsinu og var handtekinn. Þá var maðurinn einnig fundinn sekur um brot gegn valdstjórninni með því að hafa hótað tveimur lögreglumönnum til viðbótar ofbeldi á fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði. Lögreglumennirnir höfðu flutt manninn upp á sjúkrahús til að athuga með áverka sem hann hafði hlotið eftir að hafa verið barinn með kylfum í vinstri höndina og síðuna. Samkvæmt ákærunni hótaði maðurinn að nefbrjóta þá og sagður hafa steytt hnefanum ógnandi að öðrum lögreglumannanna. Einnig var hann fundinn sekur um að hafa ræktað tvær kannabisplöntur á heimili sínu sem lögregla fann við húsleit 12. júlí 2014 og fyrir að hafa í vörslu sinni fjögur grömm af maríhúana sem lögregla fann við húsleit á heimili hans 27. október sama ár. Var hann dæmdur til níu mánaða fangelsisvistar héraði en sex mánuðir af þeirri refsingu falla niður ef hann heldur skilorði.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Sjá meira