Marsspá Siggu Kling – Fiskur: Ferð inn í dásamlegan mánuð og kvíðinn leysist upp 26. febrúar 2016 09:00
Elsku hjartnæmi og áhrifaríki fiskurinn minn. Upp á síðkastið hefur kvíðinn nagað þig og þú hefur áhyggjur af ótrúlegustu vitleysu, það er hreinlega eins og þú sért að reyna að finna upp eitthvað til þess að hafa áhyggjur af. Og þú ert svo dásamlega snjall í því! Mundu það elskan mín að meðvirkni virkar aldrei og þú ert búinn að sveiflast frá því að vera meðvirkur til þess að vera svo sjálfstæður, það er það sem er að skapa þessa erfiðleika og áhyggjur hjá þér. Það er hinn gullni meðalvegur, að gera bara sitt besta og leyfa öðrum að taka svolítið ábyrgð á sjálfum sér sem þú skalt reyna að feta. Ég get með sanni sagt að þú sért að fara inn í dásamlegan mánuð núna og þú munt finna að kvíðinn verður að engu. Þú munt sjá að þú hefur réttu tökin og ef þú horfir til baka þá virðist fylgja því eitthvað álag þegar þú ert að fara inn í fæðingarmánuðinn þinn. Þú átt erfiðara með að finna ótrúlega gleði í augnablikinu en endorfínið á eftir að pumpast út í allt æðakerfið þitt og þú sýnir óviðjafnalega takta í mars! Það er nefnilega þannig með þig, að þó að þú haldir að þú kunnir ekki steppdans þá getur þú steppað. Þú hefur svo mikla tónlistarhæfileika og mikinn ryþma og ert þar af leiðandi frábær elskhugi. Þú ert mörgum svo rosalega kær og átt svo marga aðdáendur og ef þú hugsar eins og aðdáendurnir þínir hugsa um þig til þín sjálfs þá hefur þú ekkert að óttast. Þú þarft frelsi til þess að fara þínar eigin leiðir en það er samt mikilvægt að þú skoðir það virkilega núna hver fyrirmynd þín er. Hver er það sem þú lítur upp til? Þú getur kallað á hvaða orku sem þig langar til að öðlast ef þú bara veist hvað það er sem þig vantar. Fyrirmyndin mín er Ellen DeGeneres og Jón Gnarr. Finndu út hver er þín og þá veistu betur, hver þú ert og hvert þú vilt fara. Mars er þinn mánuður elsku fiskur, hann er þín áramót og þín speglun á nýju upphafi. Þetta verður miklu auðveldara en þú bjóst við svo notaðu þetta stress sem þú hefur byggt upp og breyttu því í orku til þess að láta þig fljúga enn hærra. Þú býrð yfir svo miklum og sterkum hæfileikum til þess að elska hjartans fiskurinn minn, nýttu þá vel!Frægir fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið La Gradiva hlaut Gullna lundann Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Sjá meira