Fimmtán mánaða fangelsi fyrir ítrekaðar árásir gegn börnum sínum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 12. maí 2016 17:28 Vísir/GETTY
Hæstiréttur hefur staðfest fimmtán mánaða fangelsisdóm yfir karlmanni sem sakfelldur var fyrir líkamsárásir gegn eiginkonu sinni og brot gegn barnaverndarlögum gegn þremur ungum börnum sínum. Honum var gert að greiða þeim samtals 3,1 milljón króna í skaðabætur.Réðst á stúlkuna með járnröri Maðurinn var sakaður um ólögmæta nauðung, líkamsárásir, stórfelldar ærumeiðingar og barnaverndarlagabrot á átta ára tímabili gagnvart fjölskyldumeðlimum. Hann var meðal annars sagður hafa í nokkur skipti hent dóttur sinni út af heimili sínu, illa búinni til fótanna. Þá hafi hann ráðist á hana og kastað í hana grjóti. Stúlkan lýsti árásunum fyrir dómi. Hún sagði föður sinn meðal annars í tvígang slegið sig með ryksuguröri úr járni. Hún lýsti aðdraganda síðara atviksins, sem var ári fyrir fermingu hennar, sem svo að maðurinn hafi rifið sig niður úr koju, hent sér í gólfið og lamið sig með ryksugurörinu. Hún hafi reynt að skríða undir rúm en að faðir hennar hafi náð í fót hennar og lamið hana föstum höggum með rörinu í maga, höfuð og bak. Hann hafi beitt rörinu eins og hafnaboltakylfu. Móðurinni tókst að lokum að stöðva árásina.Hótaði að senda dóttur sína á „hræðilegan stað“ Önnur dóttir mannsins sagðist hafa orðið fyrir ítrekuðum árásum af hálfu föður síns allt frá leikskólaaldri, en ekki er greint frá aldri stúlkunnar í dómnum. Stúlkan, sem býr við andlega fötlun, sagði föður sinn ítrekað sagst ætla að senda sig á hræðilegan stað – Sólheima í Grímsnesi, eða annað sambýli. Þá var manninum einnig gefið að sök að hafa ítrekað veist að syni sínum, slegið hann og kýlt. Drengurinn átti erfitt með að greina frá einstökum tilvikum og sagði fyrir dómi að hann vildi helst gleyma þeim. Hins vegar hafi hann verið beittur ofbeldi nær daglega. Eiginkona mannsins lýsti einnig líkamsárásum af hálfu hans. Hún sagðist hafa slasast en ekki þorað að fara til læknis þar sem maðurinn hafði haft í hótunum við sig og börnin. Hún hafi óttast að hann myndi gera börnunum eitthvað ef hún segði frá.Ekkert mátti út af bregða Konan sagði andrúmsloft á heimilinu hafa verið mjög þvingað og að ekkert hafi mátt út af bregða þá hafi maðurinn tekið eitthvert barnanna og lamið eða kýlt, til dæmis ef djús helltist niður. Versti tíminn hafi verið í skólafríum og þegar maðurinn var atvinnulaus, en það hafi verið í langan tíma. Maðurinn var sakfelldur fyrir mörg brot gegn almennum hegningarlögum og barnaverndarlögum gegn börnunum og tvær líkamsárásir gegn eiginkonu sinni. Dómurinn sagði að ekki yrði horft fram hjá því að lögregla lauk rannsókn málsins í nóvember 2013, en ákæra ekki gefin út fyrr en í desember 2014. Sjö mánuðir liðu frá því að ríkissaksóknara bárust dómsgerðir frá héraðsdómi þar til málsgögn voru afhent Hæstarétti. Vegna þeirra tafa geti ekki komið til álita að þyngja refsingu ákærða.Dóminn í heild má lesa hér.
Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Sjá meira