„Ótrúlega gaman fyrir svona lítið samfélag að komast í bikarúrslit,“ segir Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, eftir að hans menn hefðu lagt Keflvíkinga að velli í undanúrslitunum í kvöld.
„Við erum búnir að eiga í miklum erfileikum með þetta Keflavíkurlið og töpuðum illa fyrir þeim fyrir stuttu. Það var kannski bara gott fyrir okkur.“
Sjá einnig: Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Keflavík 100-79 | Þór í bikarúrslit í fyrsta sinn
Einar segir að lokatölur leiksins séu langt frá því að gefa rétta mynd af leiknum.
„Vance Michael Hall var stórkostlegur í kvöld og við fórum að berjast meira þegar leið á leikinn,“ segir Einar sem hræðist ekkert það verkefni að undirbúa þetta lið fyrir eins stóran leik og bikarúrslitaleik.
Einar: Stórkostlegt fyrir svona lítið bæjarfélag
Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Keflavík 100-79 | Þór í bikarúrslit í fyrsta sinn
Þór Þórlákshöfn er komið áfram í úrslit Powerade-bikarnum í körfubolta eftir magnaðan sigur, 100-79, á Keflavík í Þorlákshöfn í kvöld.

Grétar fór úr puttalið í fjórða leikhlutanum
„Það sem drepur mann ekki, styrkir mann,“ sagði Grétar Erlendsson sem öskraði af sársauka. Tvisvar.