The Color Run og Alvogen úthluta 6 milljónum króna í góðgerðamál Stefán Árni Pálsson skrifar 18. maí 2016 16:15 Efri röð - Róbert Wessmann, forstjóri Alvogen, Hildur Björk Hilmarsdóttir, sviðsstjóri hjá Rauða krossinum, Nína Helgadóttir, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri hjá Alvogen, Neðri röð - Linda Björk Hilmarsdóttir, sölustjóri The Color Run, Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins og Margrét Vala Marteinsdóttir, forstöðumaður Reykjadals
Samfélagssjóður The Color Run og lyfjafyrirtækisins Alvogen hefur úthlutað styrkjum til tveggja íslenskra góðgerðarfélaga í tengslum við litahlaupið sem haldið verður í miðbæ Reykjavíkur í sumar. Sex milljónum króna er úthlutað til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og Rauða krossins vegna verkefna sem tengjast réttindum og velferð barna á Íslandi. Samfélagssjóðurinn var stofnaður á síðasta ári þegar The Color Run var haldið í fyrsta sinn hér á landi og þá hlutu UNICEF, Rauði krossinn og Íþróttasamband fatlaðra styrk úr sjóðnum. Í Reykjadal vinnur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra að endurnýjun húsnæðis en árlega koma um 300 fötluð og langveik börn til sumar- og helgardvalar. Reykjadalur gefur börnum og ungmennum sem þurfa sérstaka þjónustu vegna fötlunar tækifæri til að komast í sumarbúðir líkt og stendur jafnöldrum þeirra til boða. Styrkurinn verður notaður í uppbyggingu á nýjum litagarði með litríkum leiktækjum í hjarta svæðisins. Rauði krossinn hóf kynningarátak á síðasta ári gegn fordómum í íslensku samfélagi undir nafninu „Vertu næs“ og samfélagssjóður The Color Run og Alvogen hefur ákveðið að styðja áfram við þetta þarfa verkefni. Áfram verður unnið að vitundarvakningu um fjölmenningarsamfélag á Íslandi sem tekur á fordómum gagnvart uppruna fólks, kynþætti eða litarhafti. „Það er gleðiefni að geta veitt sumarbúðunum í Reykjadal stuðning og efla þannig enn frekar gott starf sem þar hefur verið unnið. Samstarf okkar við Rauða krossinn hefur verið farsælt undanfarin ár og mikilvægt að samtökin geti haldið áfram að stuðla að umræðu og fræðslu um fordómalaust samfélag,“ segir Róbert Wessmann, forstjóri Alvogen. Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri The Color Run á Íslandi, segir að það sé forsvarsmönnum litahlaupsins mikilvægt að láta gott af sér leiða til samfélagsins með þessum hætti. „Þrátt fyrir að The Color Run sé ekki skilgreint sem góðgerðarhlaup þá lætur það samt gott af sér leiða. Okkur er sönn ánægja að styðja við svona flott málefni hér á landi.”
Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira