Skaðabótamáli Sjálfstæðisflokksins gegn Páli vísað frá Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 13. september 2016 12:56 Sjálfstæðisflokkurinn krafði Pál um 20 milljónir. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur vísað skaðabótamáli Sjálfstæðisflokksins gegn Páli Heimissyni frá Héraðsdómi. Sjálfstæðisflokkurinn höfðaði málið fyrir hönd hóps íhaldssamra stjórnmálaflokka en Páll var sakfelldur árið 2013 fyrir fjárdrátt er hann starfaði sem ritari hópsins. Samkvæmt stefnu til héraðsdóms höfðaði Sjálfstæðisflokkurin mál þetta „f.h. hóps íhaldssamra stjórnmálaflokka innan Norðurlandaráðs“ á hendur Páki. Þótt málið sé höfðað fyrir hönd hópsins var tekið fram í stefnunni að hópurinn sem slíkur væri ekki „sjálfstæð lögpersóna“ og hefði af þeim sökum ekki eigin kennitölu. Til að höfða málið aflaði Sjálfstæðisflokkurin sér umboðs frá þessum erlendu stjórnmálaflokkum til málsóknar á hendur varnaraðila en flokkurinn höfðaði málið með fyrrgreindum hætti í stað þess að reka það í nafni flokkanna allra. Þrátt fyrir þetta umboð er það mat Hæstaréttar að hópurinn sé ekki sjálfstæð lögpersónu og geti því ekki notið aðilarhæfis að málinu.Páll notaði kreditkortið víða.VísirDró sé rúmar nítján milljónir Páll var sakfelldur var fyrir umboðssvik árið 2013 og dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir að misnota kreditkort sem hann hafði til umráða sem starfsmaður íhaldshóps Norðurlandaráðs. Með kreditkortinu greiddi Páll fyrir vörur og utanlandsferðir fyrir rúmar nítján milljónir króna. Tólf af þessum milljónum voru teknar út úr hraðbanka en Páll hafði notað kortið í sextán löndum á tímabilinu frá janúar 2009 til mars 2011. Hæstiréttur vísaði hinsvegar frá kröfu Sjálfstæðisflokksins um að Páll skyldi endurgreiða milljónirnar nítján vegna vanreifunar en það var mat Hæstaréttar að ekki hafi verið ráðið að Sjálfstæðisflokkurinn hafi endurgreitt þá fjármuni, sem krafan tekur til, né að honum hafi verið falið málsóknarumboð til innheimtu þeirra af Íhaldshópi Norðurlandaráðs. Lögmaður Sjálfstæðisflokksins og Íhaldshópsins í málinu er Sigurður Kári Kristjánsson, fyrrverandi aþingismaður.
Tengdar fréttir Sjálfstæðisflokkurinn vill 20 milljónir frá Páli Sjálfstæðisflokkurinn hefur stefnt fyrrverandi starfsmanni Íhaldshóps Norðurlandaráðs vegna stórfelldra umboðssvika er hann starfaði fyrir hópinn. 30. janúar 2016 11:15 Páll áfrýjar til Hæstaréttar Páll Heimisson greiddi fyrir vörur og utanlandsferðir fyrir rúmlega 19 milljónir króna á kostnað SJálfstæðisflokksins. 13. janúar 2014 19:52 Lét íhaldsflokkana borga dýran fatnað Ákæran á hendur Páli Heimissyni, fyrrverandi starfsmanni í Valhöll, virðist leiða í ljós að hann hafi ferðast um heim allan og lifað hátt í tvö ár á kostnað norrænu íhaldsflokkanna. Hann tók tólf milljónir í reiðufé út úr bönkum á 26 mánuðum. 11. janúar 2013 09:00 Dæmdur fyrir að misnota kreditkort Páll Heimisson var í dag dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir að misnota kreditkort sem starfsmaður íhaldshóps Norðurlandaráðs. Níu mánuðir eru skilorðsbundnir. Þarf að endurgreiða Sjálfstæðisflokknum rúmar nítján milljónir. 14. október 2013 14:30 Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Erlent Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Innlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Fleiri fréttir Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Sjá meira
Sjálfstæðisflokkurinn vill 20 milljónir frá Páli Sjálfstæðisflokkurinn hefur stefnt fyrrverandi starfsmanni Íhaldshóps Norðurlandaráðs vegna stórfelldra umboðssvika er hann starfaði fyrir hópinn. 30. janúar 2016 11:15
Páll áfrýjar til Hæstaréttar Páll Heimisson greiddi fyrir vörur og utanlandsferðir fyrir rúmlega 19 milljónir króna á kostnað SJálfstæðisflokksins. 13. janúar 2014 19:52
Lét íhaldsflokkana borga dýran fatnað Ákæran á hendur Páli Heimissyni, fyrrverandi starfsmanni í Valhöll, virðist leiða í ljós að hann hafi ferðast um heim allan og lifað hátt í tvö ár á kostnað norrænu íhaldsflokkanna. Hann tók tólf milljónir í reiðufé út úr bönkum á 26 mánuðum. 11. janúar 2013 09:00
Dæmdur fyrir að misnota kreditkort Páll Heimisson var í dag dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir að misnota kreditkort sem starfsmaður íhaldshóps Norðurlandaráðs. Níu mánuðir eru skilorðsbundnir. Þarf að endurgreiða Sjálfstæðisflokknum rúmar nítján milljónir. 14. október 2013 14:30