Upplifir að fólk sé reitt frekar en óttaslegið Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. janúar 2015 14:25 Gunnar var í lestinni á leiðinni í frönskutíma þegar Vísir náði tali af honum. Hann sagði lestina troðfulla af fólki en að allir væru rólegir. Vísir
Gunnar Örn Stephensen er í frönskunámi í París. Hann segir upplifun sína þá að fólk í borginni sé frekar reitt heldur en óttaslegið vegna atburða síðustu daga. „Það eru lögreglumenn á stærstu lestarstöðvum í borginni sem og á stærstu ferðamannastöðunum. Ég verð samt ekki mikið var við þetta og mér finnst eins daglegt líf hérna sé ekki farið úr skorðum. Mér finnst ég allavega öruggur í borginni,“ segir Gunnar. Hann var í lestinni á leiðinni í frönskutíma þegar Vísir náði tali af honum. Hann sagði lestina troðfulla af fólki en að allir væru rólegir. Mikil lögregluaðgerð stendur nú yfir í Dammartin-en-Goële, 35 kílómetra norðaustur af París. Kouachi-bræðurnir, sem grunaðir eru um árásina á skrifstofur Charlie Hebdo, með minnst einn gísl í haldi í prentsmiðju í bænum. Þá er minnst einn vopnaður gíslatökumaður með minnst fimm manns í gíslingu í Porte de Vincennes í austurhluta Parísarborgar. Franska innanríkisráðuneytið hefur borið til baka fregnir um að tveir hafi látist. Óstaðfestar fréttir herma að sá maður sem staðfest er að sé inni í búðinni sé sá hinn sami og drap lögreglukonuna Clarissa Jean-Philippe, 26 ára, í suðurhluta Parísar í gær.
Charlie Hebdo Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira